Lífið

Þór­dís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku

Árni Sæberg skrifar
Júlí Heiðar og Þórdís Björk eru í skýjunum með fæðingu dótturinnar.
Júlí Heiðar og Þórdís Björk eru í skýjunum með fæðingu dótturinnar. Silla Páls

Dóttir listaparsins Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur og Júlís Heiðars Halldórssonar kom í heiminn á dögunum. Þau segja dótturina hafa stækkað hjörtu þeirra um nokkurn númer.

„Þessi gullfallega hárprúða stúlka mætti í heiminn 9. maí og hefur stækkað hjörtu okkar allra um nokkur númer. Þeim mæðgum heilsast báðum vel, bræður yfir sig spenntir og glaðir að fá litlu systu loksins í heiminn,“ segir í sameiginlegri færslu parsins á Instagram.

Dóttirin er fyrsta barn þeirra saman en fyrir eiga þau hvort sinn strákinn. Þau Þórdís og Júlí voru í sama bekk í Listaháskóla Íslands og höfðu verið vinir í langan tíma áður en ástin tók völd. Þau trúlofuðu sig í maí árið 2022.


Tengdar fréttir

„Dísa er fyndnasta manneskja sem ég þekki“

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson sendi unnustu sinni, listakonunni Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur, hjartnæma afmæliskveðju á Instagram. Hann segir sérhvert ástarlag hans samið um hana og vonist til að ófædd dóttir þeirra líkist móður sinni sem mest.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.