Sport

Vina­legi risinn í CrossFit heiminum er frá Ís­landi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Barón Jónsson sést hér með Emmu Lawson sem er ekki lengur efnilegasta CrossFit kona heims heldur orðin ein sú allra besta.
Snorri Barón Jónsson sést hér með Emmu Lawson sem er ekki lengur efnilegasta CrossFit kona heims heldur orðin ein sú allra besta. @snorribaron

Íslendingar munu aðeins eiga einn keppanda í meistaraflokki á heimsleikunum í CrossFit í ár sem er Björgvin Karl Guðmundsson en það verður samt annar Íslendingur með mikið undir á leikunum.

Við erum hér að tala um umboðsmanninn Snorra Barón Jónsson. Hér þekkjum við hann sem umboðsmann Björgvins Karls og Söru Sigmundsdóttur en hann er með meira af heimsklassa fólki á sínum snærum.

Snorri Barón hefur vakið athygli í CrossFit heiminum og Morning Chalk Up vefurinn fjallar ítarlega um okkar mann.

Þar kemur fram að Snorri eigi sína fortíð í auglýsingum og kraftlyftingum en hann sé nú orðinn frægur sem umboðsmaður CrossFit stjarna.

Snorri rekur umboðsskrifstofuna Bakland sem hann stofnaði á sínum tíma en samstarfsaðili hans er Lucile Phelouzat. Hún ber honum góða söguna í athugasemdum við fréttina.

Það er undir honum komið að hjálpa CrossFit fólkinu að fóta sig í heimi auglýsinga, styrkja og fjölmiðla svo eitthvað sé nefnt. Það er gott að eiga mann eins og Snorra að þegar þú þarft að einbeita þér við erfiðar æfingar.

Phelouzat er umboðsmaður helmings þess íþróttafólks sem eru hjá Bakland.

Þegar hafa sjö skjólstæðingar tryggt sér sæti á heimsleikunum og Snorri segir í samtali við Morning Chalk Up að hann búist við því að sjö í viðbót bætist í hópinn.

Snorri Barón hefur meðal annars hjálpað einni mest spennandi CrossFit konu heims að feta sín fyrstu spor undanfarin ár. Þar erum við að tala um hina kanadísku Emmu Lawson sem náði bestum árangri í heimi í fjórðungsúrslitunum og endaði í öðru sæti á heimsleikunum í fyrra. Hún er enn aðeins nítján ára gömul og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

Í grein Morning Chalk Up er Snorri Barón kallaður vinalegi risinn og hann ræðir við vefinn um aðkomu sína að CrossFit heiminum.

Viðtalið er á bak við áskrifarvegg en fyrir þá sem hafa áskrift geta nálgast viðtalið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×