Jón Gísli datt óvart í kjötiðnaðarmanninn eftir að hafa lokið fjórum önnum í húsasmíði og er þar greinilega á réttri hillu því hann er fyrirliði íslenska landsliðsins í kjötiðn. Jón Gísli hefur tvisvar keppt fyrir Íslands hönd og þegar hann er ekki að úrbeina eða búa til pylsur í vinnunni er hann að stússast fyrir landsliðið. Hann vill auka hróður greinarinnar og segir starf kjötiðnaðarmanns bæði fjölbreytt og skemmtilegt.
Jón er rokkhaus og uppáhaldshljómsveitin hans er Korn sem hann hlustar á í bílnum. Hann er reyndar haldinn umferðareiði og lætur „fífl í umfeðrinni” fara vel í taugarnar á sér.
Hér má hlusta á viðtalið við Jón Gísla, þar sem hann svarar einnig nokkrum hraðaspurningum:
Hér er hægt að kjósa Iðnaðarmann ársins 2024: