Lífið

Þriðja stúlka Evu Lauf­eyjar og Hadda fædd og komin með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Eva Laufey og Haddi hafa verið saman í um átján ár.
Eva Laufey og Haddi hafa verið saman í um átján ár. Eva Laufey

Eva Lauf­ey Kjaran, markaðs-og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups, og eiginmaður hennar Har­ald­ur Har­alds­son deild­ar­stjóri Iceland­air Cargo eignuðust stúlku 26. maí síðastliðinn. Stúlkan mætti á settum degi og sér fjölskyldan ekki sólina fyrir henni. 

Um er að ræða þeirra þriðja barn Evu og Hadda, eins og  hann er kallaður, en fyrir eiga þau dæturnar Ingibjörgu Rósu sem er níu ára og Kristínu Rannveigu sex ára. Sú stutta hefur fengið nafnið Margrét Maren í höfuðið á konum sem eru þeim afar kærar.

„Við sjá­um ekki sól­ina fyr­ir henni og njót­um þess að kúra með henni alla daga enda er ekk­ert betra í þess­um heimi en ná­kvæm­lega þetta,“ skrifar Eva Lauf­ey við fallega myndafærslu á Instagram.

Eva Laufey og Haddi byrjaði saman fyrir um átján árum síðan og gengu í hnapphelduna 23. júlí 2016 við fallega athöfn í Akraneskirkju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×