Lífið

Myndaveisla: Eliza og Lilja Al­freðs í af­mæli Karls Breta­konungs

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Afmælisveisla Karls Bretakonungs var hin glæsilegasta.
Afmælisveisla Karls Bretakonungs var hin glæsilegasta.

Breska sendiráðið fagnaði afmæli Karls Bretakonungs í hópi góðra gesta í veislusal Center Hotels Plaza við Aðalstræti í gær. Afmæli þjóðhöfðingja í Bretlandi er vanalega haldið í júní þó afmæli þeirra séu á öllum tímum árs. Þema veislunnar var sustainability eða sjálfbærni og umhverfisvernd, sem hafa lengi verið áhersluatriði konungsins.

Í ræðu sendiherran Bretlands, Dr Bryony Mathew, sagði hún sendiráðið hafa lagt sig fram við að ekkert rusl yrði eftir veisluna, ekkert nýtt skraut hefði verið keypt og að starfsfólk hafi klæðst notuðum eða leigðum flíkum. Þá voru gestir hvattir til að taka veitingar með sér heim að veislu lokinni. 

Dr Bryony Mathew sendiherra Bretlands á Íslandi.

Í boðskortinu voru gestir hvattir til að klæðast notuðum eða leigðum flíkum og íhuga umhverfisvænar samgöngur til að koma til og frá veislu. 

Fjöldi fólks lagði leið sína í veisluna og skáluðu fyrir konunginum. Má þar meðal annars nefna ráðherrana, Lilju Alfreðsdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson, Unu Sighvatsdóttur sérfræðings embættis forseta Íslands, Elizu Reid forsetafrú og Ryotaro Suzuki sendiherra Japans.

Veislan var hin glæsilegasta líkt og eftirfarandi myndir gefa til kynna.

Guðlaugur Þór ráðherra og Bryony Mathew sendiherra.
Maria Lunander, Samuel Ulfgard, Ryotaro Suzuki sendiherra Japan og Satoko Suzuki.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra, Dr Bryony Mathew sendiherra og Eliza Reid forsetafrú.
Fjöldi gesta mættu í veisluna.
Þurý Björk, Capt. John Fay og Fríða Axelsdóttir.
Helgi Pétur Gunnarsson og Una Strand Viðarsdóttir.
Auður Hannesdóttir og Sunna Marteinsdóttir.
He Rulong sendiherra Kína og Ting Shen sendiherrafrú.
Veitingar voru ljúffengar og var gestum boðið að taka afganga með sér að veislu lokinni.
Sveinn Friðrik Sveinsson og Katrín Atladóttir.
Svana Lovísa Kjartansdóttir blómaskreytir áhrifavaldur og Bjarni Sigurðsson keramíker.
Anna Bryndís Hendriksdóttir og David Lynch.
Sendiherrahjónin Paul Mathew og Dr Bryony Mathew.
Skálað fyrir Karli Bretlandskonungi.
Hluti vinningshafa í happdrættinu.
Tríóið Fjarkar.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra.
Starfsfólk Utanríkisráðuneytisins.
Vinningshafi í happdrættinu.
Guðrún Kjartansdóttir, Marín Magnúsdóttir, Dóra Júlía Agnarsdóttir og Andri Þór Guðmundsson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×