Lífið

Greta Salóme og Elvar greina frá kyninu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Greta Salóme Stefánsdóttir og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu öðru barni saman í haust.
Greta Salóme Stefánsdóttir og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu öðru barni saman í haust. Instagram

Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á dreng í haust. Um að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau Bjart Elí sem fæddist í nóvember árið 2022. Greta tilkynnti gleðitíðindin í færslu á samfélagsmiðlum.

Í færslunni má sjá myndskeið af syni þeirra koma gangandi inn í stofurými, þar sem þau sitja ásamt fjölskyldu sinni, með bláa blöðru í hendinni. Blái liturinn gefur til að kynna að um dreng sé að ræða. 

Að lokum má sjá þegar Greta og Elvar skera fallega kynjaköku með bláu kremi innan í.

Greta og Elvar kynntust þegar hann þjálfaði hana í líkamsræktarþjálfuninni Boot Camp. Þau trúlofuðu sig síðan í janúar árið 2018 og gengu í hjónaband þann 29 apríl árið 2023 í Mosfellskirkju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.