Útlán til fyrirtækja tóku sextíu milljarða stökk og hafa aldrei mælst meiri
![Peningastefnunefnd Seðlabankans, sem hefur haldið meginvöxtum óbreyttum í 9,25 prósent á síðustu fimm fundum, horfir meðal annars nokkuð til útlánavaxtar bankanna til fyrirtækja við ákvörðun vaxta enda er hann vísbending um þróttinn í hagkerfinu hverju sinni.](https://www.visir.is/i/5CDAA5765314880AFDC309DBE0F682E016CC9F9EF66582E0BFC9610CAB687488_713x0.jpg)
Ágætis þróttur er í nýjum útlánum bankakerfisins til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir þröng lánþegaskilyrði en í maí námu þau meira en sextíu milljörðum og hafa aldrei mælst meiri í einum mánuði. Vöxturinn er sem fyrr drifinn áfram af ásókn fyrirtækja í verðtryggð lán á tímum hárra vaxta auk þess sem mikil aukning er í lánum í erlendum gjaldmiðlum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/6E309B93110DBCF75924CC9234F0A3705CA6C6D02CF3878D8295B8929CBBEE03_308x200.jpg)
Hægir enn á hagvexti og auknar líkur á að núverandi raunvaxtastig sé „hæfilegt“
Horfur eru á að hagvöxtur verði umtalsvert minni í ár en Seðlabankinn gerði áður ráð fyrir samhliða því að hægt hefur nokkuð á vexti innlendrar eftirspurnar. Peningastefnunefnd hefur ákveðið halda vöxtum bankans óbreyttum fimmta fundinn í röð, sem er í samræmi við spár allra greinenda og markaðsaðila, og telur núna meiri líkur en áður að aðhaldsstigið dugi til að ná verðbólgunni niður í markmið.
![](https://www.visir.is/i/9800396797D1F59B8DB7F76B3FDEFBFCE739032DD61196F1FF48769E6C7B056B_308x200.jpg)
Fyrirtækin bregðast við háum vöxtum og færa sig yfir í verðtryggð lán
Þrátt fyrir hækkandi vaxtastig er áfram nokkur þróttur í nýjum útlánum til fyrirtækja en þau er núna nánast alfarið drifin áfram af sókn þeirra í verðtryggð lán. Frá því um mitt árið í fyrra er hlutfall verðtryggðra útlána meira en áttatíu prósent af öllum nýjum lánum bankanna til atvinnulífsins.