Lífið

Erfiðast að flytja til Ís­lands án mömmu sinnar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alexandra Rún er meðal keppenda í Ungfrú Ísland.
Alexandra Rún er meðal keppenda í Ungfrú Ísland. Arnór Trausti

Alexandra Rún Landmark er nítján ára gömul og eyddi níu árum ævi sinnar í Bandaríkjunum. Mamma Alexöndru er fyrirmynd hennar í lífinu en Alexandra er meðal keppenda í Ungfrú Ísland sem verður haldin í Gamla Bíó 14. ágúst næstkomandi.

Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu 14. ágúst á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Fullt nafn?

Alexandra Rún Landmark.

Aldur?

19 ára.

Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni?

Mömmu var boðið að vera með en hún ákvað að gera það ekki. Hún hefur líka oft sagt mér að það gæti verið gaman að taka þátt.

Hvað ert þú búin að læra í ferlinu?

Ég hef lært að góð líkamsstaða gerir margt fyrir þig.

Alexandra Rún segir góða líkamsstöðu mikilvæga.Arnór Trausti

Hvaða tungumál talarðu?

Ég bjó í Ameríku í níu ár svo ég tala reiprennandi ensku.

Hvað hefur mótað þig mest?

Það sem hefur mótað mig mest er að flytja aftur til Íslands og þekkja ekki marga. Ég er í kjölfarið betri í samskiptum við aðra.

Erfiðasta lífsreynslan hingað til?

Erfiðasta lífsreynslan var að flytja aftur til Íslands án mömmu minnar.

Hverju ertu stoltust af?

Ég er stoltust af því hvernig mamma ól mig upp sem manneskju og ég er hver ég er í dag vegna hennar.

Besta heilræði sem þú hefur fengið?

Best ráðið sem ég hef fengið er að ekki einbeita þér að fortíðinni því það mun alltaf draga þig til baka.

Hver er uppáhalds maturinn þinn?

Minn uppáhalds matur er sushi og asískur matur.

Hver er þín fyrirmynd í lífinu?

Mín fyrirmynd er mamma mín út af því hún er dugleg og góð manneskja og hefur afrekað margt sem ég er stolt af.

Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?

Ég fór í mat með Candace Bushnell, sem er höfundur Sex and The City. Ég hef líka hitt Daniel Baldwin og er vinkona dóttur hans.

Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í?

Ég hef lent í sérsveitinni í Bandaríkjunum af því að litli bróðir minn setti svart límband yfir batterí og einhver hélt að þetta hafi verið sprengja og hringdi í lögguna, stór misskilningur.

Hver er þinn helsti ótti?

Minn ótti er djúpt vatn eða sjórinn því maður sér ekkert hvað er undir manni.

Hvar sérðu þig í framtíðinni?

Í framtíðinni langar mig að stofna fyrirtæki og eiga börn og fjölskyldu.

Hvaða lag tekur þú í karókí?

Lagið sem ég tek í karíoki er Money money money með Abba.

Þín mesta gæfa í lífinu?

Ég er heppnust með vinkonur og vini sem þykja vænt um mig og hafa alltaf verið til staðar þegar ég þurfti og mömmu sem hefur alltaf stutt mig og leiðbeint mér í gegnum árin.

Uppskrift að drauma degi?

Vakna í Dubai, fá mér mjög góðan morgunmat, fara svo á ströndina og í sólbað, fá mér sushi í hádegismat, fara á fjórhjól í eyðimörkinni við sólsetur og fá mér að lokum fínan kvöldmat.

Hér er hægt að kjósa í Ungfrú Ísland. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×