Lífið

Gerður í Blush trú­lofuð

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Jakob Fannar og Gerður eru trúlofuð.
Jakob Fannar og Gerður eru trúlofuð. Instagram @gerdurarinbjarnar

Athafnakonan Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, er trúlofuð sínum heittelskaða Jakobi Fannari. 

Parið er statt á Ítalíu um þessar mundir og virðist rómantíkin vera allsráðandi. 

Gerður birti fallega myndaseríu af þeim hjúum og skrifar undir: „Munum seint gleyma þessari Ítalíuferð.“ Þar skartar Gerður glæsilegum demants trúlofunarhring og merkir dagsetninguna 4. júlí 2024. 

Parið hefur búið saman frá árinu 2018 og eru einstaklega samrýmd. Þau kynntust árið 2016 og tóku sér góðan tíma í að kynnast og deita. Gerður og Jakob Fannar voru viðmælendur í fasta liðnum Ást er hér á Vísi í nóvember 2022. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×