Fréttamaður tók stöðuna á hátíðahöldunum í beinni í kvöldfréttum.
„Hérna erum við að hóa saman fólkinu okkar og leyfa þeim að eiga góða stund saman,“ segir Kristín Lilja Sigurðardóttir verkefnastjóri hjá Krafti.
Viðburðir á vegum Krafts eru mánaðarlegur liður í starfi félagsins en Kristín segir að sá í dag sé aðeins meira spari.
„Nú er að koma Reykjavíkurmaraþonið. Og Kraftur er að sjálfsögðu með hlaupara þar,“ segir Kristín aðspurð hvað sé á döfinni. Hún hvetur áhugasama um að hlaupa fyrir gott félag að skrá sig.
Kristín segir mjög mikilvægt að halda uppi starfi sem þessu. „Félagsmenn okkar segja það alveg, að fá að vera í kringum aðra félagsmenn, sem eru í sömu sporum, það gefur þeim alveg gríðarlega mikið.“