Lífið

Mundi ekki af­mælis­dag eigin­konunnar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Snorri Másson fjölmiðlamaður var greinilega ekki alveg með á nótunum.
Snorri Másson fjölmiðlamaður var greinilega ekki alveg með á nótunum. Vísir/Vilhelm

Snorri Másson fjölmiðlamaður lenti í því að gleyma afmælisdegi eiginkonu sinnar Nadine Guðrúnar Yaghi. Hann sagði fullum hálsi í hlaðvarpsþætti sínum þar sem stjörnumerki og -speki voru til umræðu að eiginkona hans ætti afmæli fjórtánda mars og væri því hrútur en hvorugar þessara staðhæfinga eru réttar.

Nadine birti færslu á síðu sinni á TikTok þar sem hún tekur atvikið fyrir og hún er eins og gefur að skilja ekki ánægð með nýja eiginmann sinn.

@nadinegudrun

Eru naut heimska stjörnumerkið?

♬ original sound - Nadine Guðrún Yaghi

„Ég er búin að vera með þessum manni í ástarsambandi í nokkur ár. Við vorum að gifta okkur en hann veit ekki hvenær ég á afmæli,“ segir hún kaldhæðnislega.

Um ræðir óbirtan hlaðvarpsþátt Snorra þar sem hann tekur stjörnuspeki fyrir. Snorri segir kokhraustur að Nadine eigi afmæli í mars en hún áréttar í færslunni að hún eigi vissulega afmæli í janúar.

„Ég er giftur maður en ég þyrfti nú kannski að hjálpa konunni minni áleiðis því hún er alveg klikkuð hún er fædd fjórtánda mars,“ segir Snorri en samhengi ummæla hans er ekki ljóst.

Nadine kemur því þá á framfæri að hún sé fullkomlega meðvituð um hvenær Snorri eigi afmæli og hvert hans stjörnumerki er.

„Hann er naut í stjörnumerkinu á afmæli fyrsta maí. Ég held það hljóti að vera að naut séu frekar heimsk,“ segir Nadine.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.