Lífið

Með lykilinn að því hvernig á að gera eftir­­hermu af Ís­­lending

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Fred Armisen.
Fred Armisen. Getty

Leikari þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum og þáttum á borð við Anchorman, Portlandia, Wednesday, SNL, Barry og Eurotrip segir það auðvelt að gera eftirhermu af Íslendingum og að við eigum það til að tala eins og við séum að ræða leyndarmál. 

Hinn víðfrægi Fred Armisen er á leið til landsins en hann mun stíga á svið í Háskólabíó þann 21. september með sýninguna Comedy for musicians eða Grín fyrir tónlistarmenn. Þrátt fyrir titilinn segir Armisen að allir muni hafa gaman af sýningunni.

„Ég held það því allir hafa einhvers konar samband við tónlist. “

Viðtalið í heild sinni er hægt að berja augum í spilaranum hér að neðan:

Jós lofi yfir íslenska leikara

Armisen hefur komið til Íslands þrisvar sinnum áður og segist spenntur að koma aftur. Hann gerði garðinn frægan á Íslandi þegar hann kom til landsins til að gera skopheimildarmynd um bæjarhátíð á Íslandi tileinkuð Al Capone fyrir þættina Documentary now! 

Þá vann hann með sumum af ástsælustu leikurum Íslands. Sem dæmi má nefna Nínu dögg, Sigga Sigurjóns og Hannes Óla.

„Ég held ég hafi gert verkefnið sem afsökun til að vinna á Íslandi. Það er annað að fara og heimsækja en mig langaði svo mikið að gera eitthvað alvöru hérna. Íslensku leikararnir voru frábærir þeir settu sig alla í þetta. Þeir skildu grínið einstaklega vel, ekki það að grínið hafi verið eitthvað flókið. “

Eins og Íslendingar séu alltaf að segja leyndarmál

Fred var um árabil einn af aðalleikurum í grínþáttunum SNL og gerði þar fjölmargar eftirhermur. Spurður hvort hann gæti gert eftirhermu af dæmigerðum Íslending svaraði hann játandi en sagðist ekki vilja gera það að svo stöddu.

„Alltaf þegar Íslendingar tala við mig er það alltaf eins og það sé svona hvísl yfir öllu eða eins og það sé talað í hálfum hljóðum. Þetta er svona eins það sé eitthvað leyndarmál sem þeir vilja ekki segja þér frá en þú ert samt einhvern veginn hluti af.“

Fréttamaður reyndi að kryfja málið með Armisen og var komist að þeirri niðurstöðu að hann væri að vísa í það hvernig Íslendingar eiga það til að tala á innsoginu.

„Ég hugsa alltaf bara: Hvað áttu við? Er ég hluti af þessu leyndarmáli?“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×