Lífið

Stjörnum prýdd dóm­nefnd í Ung­frú Ís­land

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Dómnefndin í Ungfrú Ísland er skipuð fimm íslenskum stjörnum.
Dómnefndin í Ungfrú Ísland er skipuð fimm íslenskum stjörnum. SAMSETT

Þann 14. ágúst næstkomandi keppast 25 stúlkur um titilinn Ungfrú Ísland. Keppnin fer fram í Gamla Bíói og dómnefnd er skipuð fimm stórstjörnum.

Dómarar í ár eru Friðrik Ómar Hjörleifsson, tónlistarmaður, Arna Ýr Jónsdóttir, fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi, Guðmundur „Gummi Kíró“ Birkir Pálmason, kírópraktor og áhrifavaldur, Gerður Huld Arinbjarnardóttir, viðskiptakona og eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush og Kolbrún Pálína Helgadóttir, athafnakona.

Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð2Vísi. Miklar breytingar eru á keppninni í ár en þar ber hæst að keppnin verður alfarið á íslensku og íslensk dómnefnd mun velja þá konu sem ber sigur úr býtum. Lilja Sif Pétursdóttir, Ungfrú Ísland 2023, mun krýna arftaka sinn, en Lilja keppti fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe í El Salvador í fyrra.

Í fréttatilkynningu frá Ungfrú Ísland segir:

„Það er augljóst að dómnefndinni bíður ekki auðvelt verkefni því 25 glæsilegar og frambærilega konur keppa um titilinn og tækifærið sem fulltrúi Íslands á alþjóðavísu. Stærsti og veigamesti hluti keppninnar er viðtalshlutinn, en keppendur hitta dómnefnd í persónulegu viðtali daginn fyrir lokakvöldið. 

Á sviðinu sjálfu munu konurnar svo klæðast fatnaði frá Gina Tricot, sundfötum frá Wagtail og skarti frá Vera Design - og að lokum koma fram í síðkjól sem þær hafa valið sjálfar.“

Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri Ungfrú Ísland, er full tilhlökkunar fyrir keppninni. 

„Ég er virkilega spennt fyrir þessum breytingum. Það skiptir mig höfuðmáli að allir keppendur standi jafnir og ég er sannfærð um að þessi fjölbreytti hópur fagfólks velji okkur góðan fulltrúa,“ segir Manúela Ósk. Almenningi gefst einnig tækifæri til að velja NETSTÚLKUNA 2024 hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×