Sport

Dag­skráin í dag: Komast Víkingar á­fram?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Víkingur skoraði ekki í fyrri leiknum gegn Shamrock Rovers. Hvað gerist í kvöld?
Víkingur skoraði ekki í fyrri leiknum gegn Shamrock Rovers. Hvað gerist í kvöld? vísir/diego

Það kemur í ljós í kvöld hvort Íslands- og bikarmeistarar Víkings komast áfram í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Einnig verður sýnt beint frá golfi, pílukasti og hafnabolta á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18:50 hefst útsending frá seinni leik Shamrock Rovers og Víkings í forkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 08:00 og 13:00 hefst Live at the Range á Breska meistaramótinu í golfi.

Vodafone Sport

Klukkan 18:00 er komið að Matchroom Darts.

Klukkan 23:30 verður sýnt frá stjörnuleiknum í bandarísku MLB-deildinni í hafnabolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×