Lífið

Tíu myndar­leg ein­býlis­hús á höfuð­borgar­svæðinu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lífið á Vísi setti saman lista með glæsilegum einbýlishúsum sem eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu.
Lífið á Vísi setti saman lista með glæsilegum einbýlishúsum sem eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu.

Á fasteignavef Vísis er að finna fjölbreytt framboð af einbýlishúsum af öllum stærðum og gerðum. Lífið á Vísi tók saman lista sem samanstendur af tíu einbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu sem eiga það sameiginlegt að vera afar glæsileg og kosta skildinginn.

Sunnuflöt

Við Sunnuflöt 23 í Garðabæ er að finna reisulegt einbýlishús sem var byggt árið 1968. Húsið er 256 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Heimilið er hlýlega innréttað og hafa núverandi eigendur nostrað við húsið á einstakan máta. Ásett verð er 229 milljónir. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Dyngjuvegur 

Við Dyngjuveg 2 í Reykjavík er að finna 594 fermetra einbýlishús var byggt árið 1950. Húsið var upphaflega 358 fermetrar að stærð og teiknað af Gísla Halldórssyni. Núverandi eigendur hafa átt húsið frá 2006 og gerðu þau gagngerar endurbætur á húsinu sem stóðu til ársloka 2011 þegar þau fluttu inn. Davíð Pitt arkitekt hannaði viðbyggingu og innréttingar hússins auk þess sem hann aðstoðaði við efnisval. Óskað er eftir tilboði í eignina. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Dalakur 

Við Dalakur 3 í Garðabæ er að finna 280 fermetra einbýlishús sem var byggt árið 2014. Kristján Ragnarsson er arkitekt hússins og kom Rut Káradóttir, innanhússarkitekt, að hönnun hússins á byggingarstigi eitt og fylgdi því til enda með vali á litum, gólfefni, gardínum og fleira. Í stofunni er stór og stæðilegur gasarinn sem setur svip á rýmið ásamt stórum gólfsíðum gluggum. Óskað er eftir tilboði í eignina.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Sunnubraut

Við Sunnubraut 47 í Kópavogi má finna 196 fermetra einbýlishús á einni hæð. Húsið var byggt árið 1992 og staðsett á glæsilegri 750 fermetra sjávarlóð í lokuðum botnlanga með stórbrotnu útsýni. Ásett verð er 250 milljónir. 

Nánari upplýsingar á fasteiganvef Vísis.

Núverandi eigandi byggði húsið sjálfur.

Haukanes 

Við Haukanes í Garðabæ er að finna 356,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið var byggt árið 1985 og er töluvert endurnýjað. 

Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt af Guðbirni Guðjónssyni múrarameistars en súlur og stórir gluggar spila þar stórt hlutverk. Á svölunum er stór innbyggður pottur og aukaíbúð á jarðhæðinni. Ásett verð er 259 milljónir.  

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Eigandi hússins er Karl Björgvin Brynjólfsson en hann sló í gegn hér á Vísi þegar hann auglýsti börnin sín á lausu í miðbæ Akureyrar árði 2022.

Þrastanes  

Við Þrastanes 3 í Garðabæ stendur sjarmerandi 392 fermetra einbýlishús. Húsið var byggt árið 1979 og var gert upp að miklu leyti árið 2021 og 2022. Eignin, sem er á þremur hæðum, er búin fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Ásett verð er 320 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Stórakur 

Við Stórakur 5 stendur reisulegt 386 fermetra einbýlihús á þremur pöllum með mikilli lofthæð. Húsið var byggt árið 2015 og hannað af Ívari Erni Guðmunssyni arkitekt. Timbur og steinflísar eru á veggjum við glæsilega yfirbyggða 65 fermetra suðurverönd til vinstri við inngang, þar sem er vönduð innbyggð grillaðstaða og glæslegur útiarin. Steinflísarnar flæða inn í forstofu hússins og eftir gangi þar sem veggir eru flísalagðir þvert í gegnum húsið, og tengja þannig saman innra og ytra rými. Ásett verð er 450 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Eigendur hússins eru hjónin Hann­es Hilm­ars­son, einn af eigendum flugfélagsins Atlanta, og Guðrún Þrá­ins­dótt­ir. Nýverið festu þau kaup á glæsivillu við Mávanes sem áður var í eigu Ingu Lindar Karlsdóttur sjónvarpskonu og eiganda Skot Productions.

Geitastekkur 

Við Geitastekk 1 í Reykjavík er að finna einbýlishús sem var byggt árið 1974. Húsið er staðsett í lokuðum botnlanga stutt frá Elliðaárdal. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan og utan síðastliðin ár og er útkoman afar flott. Ásett verð er 189 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Haukanes 

Við Haukanes 6 í Garðabæ er að finna 384 fermetra einbýlishús sem var byggt árið 1979. Húsið stendur á fallegri sjávarlóð og því með einstöku útsýni. Samtals eru sex svefnherbergi og tvö baðherbergi. Ásett verð er 330 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Gullakur 

Við Gullakur 9 í Garðabæ er að finna 375 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum inn í botnlangagötu. Húsið var byggt árið 2008 og teiknað af Valdimar Harðarsyni arkitekt. Eignin er búin fimm svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Ásett verð er 375 milljónir. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×