Innherji

Auka enn stöðu sína í Festi þegar stærstu einka­fjár­festarnir voru keyptir út

Hörður Ægisson skrifar
Lífeyrissjóður verslunarmanna, næst stærsti hluthafinn í Festi, keypti hlutfallslega mest af þeim bréfum sem Þórður Már og Hreggviður seldu fyrr í þessum mánuði.
Lífeyrissjóður verslunarmanna, næst stærsti hluthafinn í Festi, keypti hlutfallslega mest af þeim bréfum sem Þórður Már og Hreggviður seldu fyrr í þessum mánuði. Vísir/Hanna

Lífeyrissjóðir keyptu umtalsverðan hluta bréfa af tveimur stærstu einkafjárfestunum í Festi þegar þeir losuðu um allan sinn eignarhlut sinn í smásölurisanum fyrir samtals tæplega þrjá milljarða fyrr í þessum mánuði. Umsvif einkafjárfesta í félaginu er núna hverfandi en samanlagður eignarhlutur lífeyrissjóða í Festi er á sama tíma óðum að nálgast hátt í áttatíu prósent.


Tengdar fréttir

Gagn­rýnir sér­ís­lenskt kerfi þar sem líf­eyris­sjóðum er leyft að móta veru­leikann

Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×