Handbolti

Miklar væntingarnar til ís­lenska lands­liðsins rétt­lætan­legar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viktor Gísli fyrir leik Íslands og Austurríkis í milliriðill á EM karla í handbolta í Köln fyrr á þessu ári.
Viktor Gísli fyrir leik Íslands og Austurríkis í milliriðill á EM karla í handbolta í Köln fyrr á þessu ári. vísir/vilhelm

Landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta segir að miklar kröfur þjóðarinnar til liðsins séu mjög eðlilegar og það komi sér ekki á óvart.

Viktor Gísli Hallgrímsson samdi á dögunum við pólsku meistarana í Wisła Płock og leikur hann með liðinu á komandi tímabili. Viktor hefur staðið í marki íslenska landsliðsins undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur staðið sig vel og var til að mynda eitt sinn valinn í úrvalslið Evrópumótsins árið 2022.

„Persónulega finn ég ekki fyrir mikilli pressu, bara aðallega gleði. Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir, að spila með íslenskum félögum, hafa gaman utan vallar og svo set ég mestu pressuna á sjálfan mig,“ segir Viktor Gísli í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi.

Ísland tekur þátt á HM í byrjun næsta árs en mótið verður í Króatíu, Danmörku og Noregi en Ísland leikur með Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóvenum í Zagreb.

„Við erum á góðri leið að springa út. Við erum með fullt af góðum leikmönnum, Snorri [Steinn Guðjónsson] er frábær þjálfari með mjög gott konsept sem hentar okkur mjög vel. En það tekur kannski tíma að fá allt til að smella. Hann náði ekki mörgum æfingum með liðinu og við náðum ekki alveg að fínpússa sóknarleikinn en þetta kemur með tímanum og ég er mjög bjartsýnn.“

En hvað finnst Viktori um þá miklu pressu sem þjóðin setur alltaf á íslenska liðið?

„Við horfðum upp á 2008 liðið lenda í öðru sæti og standa sig frábærlega. Það er það sem fólk er vant og vill ná því aftur og við viljum líka ná þessu. Við erum með leikmenn að spila í bestu deildum í heimi og það er kannski ekki algengt hjá íslenskum íþróttamönnum að spila með svona toppliðum og svona margir, þannig að ég myndi alveg segja að pressan sé réttlætanleg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×