Bíó og sjónvarp

Ís­lendingar til­nefndir til Emmy-verðlauna

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Atli á BAFTA-veðlaununum í apríl. 
Atli á BAFTA-veðlaununum í apríl.  Skjáskot/Youtube

Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson er tilnefndur til Emmy-verðlauna í flokki framúrskarandi tónverka fyrir sjónvarpsþættina Silo. 

Tilnefningar til verðlaunanna voru tilkynntar síðdegis. Atli er tilnefndur fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttunum Silo, sem sýndir eru á streymisveitunni Apple TV+. Tónskáld fimm annarra tónverka eru tilnefnd í sama flokki. Þar á meðal fyrir tónlistina í The Crown, Mr. & Mrs. Smith og Shōgun. 

Í apríl hlaut Atli BAFTA-verðlaunin fyrir tónlist sína í sömu þáttum. 

Nokkrir í hópi tilnefndra vegna True Detective

Fréttastofu barst ábending um að fleiri Íslendingar hafi hlotið tilnefningu, fyrir þættina True Detective: Night Country. Þættirnir voru teknir upp á Íslandi og eru meðal annars sýndir á Stöð 2+. Íslendingarnir eru í hópi fólks sem hljóta sömu tilnefninguna í viðkomandi flokki. 

Skúli Helgi Sigurgíslason er tilnefndur í flokki framúrskarandi hljóðblöndunar, Alda B. Gudjónsdóttir í flokki leikaravals, Rebekka Jónsdóttir í flokki búninga, Flóra Karítas Buenaño og Hafdís Pálsdóttir í flokki förðunar og Eggert „Eddi“ Ketilsson í flokki tæknibrella. 

Emmy-sjónvarpsverðlaunin fara fram þann 15. september í Los Angeles. Sjónvarpsþættirnir Shōgun hlutu flestar tilnefningar að þessu sinni, eða 25 tilnefningar. The Bear hlaut næstflestar tilnefningar, 23 talsins.

 Lista yfir tilnefningar til Emmy-verðlaunanna má nálgast hér

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×