Lífið

Sonur Söndru og Daníels kominn með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi.
Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi. Sandra Erlingsdóttir

Handboltaparið Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn fékk nafnið Martin Leo Daníelsson. Parið greindi frá gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram í gær.

Drengurinn kom í heiminn 15. júlí síðastliðinn og fyrsta barn parsins. 

Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi þar sem þau eru bæði atvinnumenn í handbolta.

Sú fyrsta sem verður ólétt í liðinu

Sandra leikur með þýska úrvalsdeildarliðinu Metz­ingen og er ein fremsta hand­bolta­kona Íslands og spilar lykilhlutverk í íslenska landsliðinu. Þá var hún valin handboltakona ársins 2022.

„Strax og ég pissaði á prófið og sá að ég var ólétt þá fór smá um mann, úff, af því að það hefur engin í liðinu [Metzingen] eignast barn. Ég er sú fyrsta sem verður ólétt. Það er algengt í Þýskalandi að konur spili til þrítugs og fari svo í barneignir, á meðan að við í Skandinavíu eignumst frekar börn og spilum svo áfram,“ sagði Sandra í viðtali við Stöð 2 sport í byrjun árs. Liðfélagar hennar tóku þó vel í þær fréttir að hún væri orðin ólétt.

Daníel leikur með HBW Balingen-Weilstetten.

Daníel hefur verið í atvinnumennsku síðan 2019 en þá yfirgaf hann Hauka og gekk til liðs við Ribe-Esbjerg í Danmörku. Alls hefur hann leikið 39 landsleiki með A-landsliði karla í handbolta og skorað í þeim 11 mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×