Lífið

Sögu­legt og sjarmerandi ein­býlis­hús í 101

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið var flutt í heilu lagi árið 1998 af grunni sínum og sett niður á nýjan steyptan grunn/ kjallara við Nýlendugötu.
Húsið var flutt í heilu lagi árið 1998 af grunni sínum og sett niður á nýjan steyptan grunn/ kjallara við Nýlendugötu.

Við Nýlendugötu 32 í Reykjavík er að finna eitt af elstu einbýlishúsum borgarinnar. Húsið var byggt árið 1906 við Hverfisgötu og síðar flutt í heilu lagi að Nýlendugötu árið 1998. Ásett verð fyrir eignina er 159,9 milljónir.

Heildarstærð hússins er 177,6 fermetrar og er á þremur hæðum. Samtals eru fimm svefnherbergi og eitt baðherbergi. 

Gengið er inn á jarðhæð hússins, en það er að finna opið og bjart alrými með aukinni lofthæð sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Þaðan er útgengt í gróinn og skjólgóðan garð. 

Upprunalegur sjarmi og klassísk hönnun

Gluggar, hurðir og loftlistar, og viðarbitar í loftum gefa eigninni einstakan sjarma í anda upp­runa­leg­s bygginarstíls hússins.

Heimilið er innréttað á heillandi máta þar sem mildir litatónar og klassísk hönnun er í aðalhlutverki. 

Eldhúsinnréttingin er dökk með góðu vinnu- og skápaplássi og borðplötu úr við. Fyrir miðju rými er frístandandi eyja. Við borðstofuborðið eru svartar Sjöur eftir danska hönnuðinn Arne Jacobsen. Yfir borðinu er klassískt PH5-ljós í rauðum lit sem poppar skemmtilega upp á rýmið. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×