Sport

Ungur fótboltamaður drukknaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andre Seldon Jr. náði aldrei að spila leik fyrir nýja liðið sitt.
Andre Seldon Jr. náði aldrei að spila leik fyrir nýja liðið sitt. utahstateaggies.com

Sundferð á sumardegi endaði mjög illa fyrir ungan og efnilegan bandarískan íþróttamann sem var að hefja háskólanám á nýjum stað.

Andre Seldon Jr. fannst látinn um helgina eftir að hafa drukknað í uppistöðulóni í Utah fylki.

Seldon var aðeins 22 ára gamall. Hann lék amerískan fótbolta með háskólaliði Utah fylkisháskólans.

Lögreglan í Cache héraði segir að leit hafi farið í gang á laugardagskvöldið í uppistöðulóninu Porcupine. Vitni sögðu að ungur maður hefði stokkið fram af kletti og ekki skilað sér upp aftur. Kafarar og þyrla voru kölluð til og lík Seldon fannst rétt eftir níu um kvöldið.

Lögreglan telur að um slys hafi verið að ræða eftir að vitni af slysinu hafi öll sagt keimlíka sögu af því sem gerðist.

Seldon var nýbúinn að skipta yfir í Utah State háskólann eftir að hafa verið áður við nám við New Mexico State í tvö ár. Hann lék sem varnarmaður og var fyrirliði New Mexico liðsins.

Seldon fylgdi þjálfara sínum frá New Mexico State til Utah State. Nate Dreiling var áður varnarþjálfari New Mexico State en er nýtekinn við sem varnarþjálfari Utah State auk þess að sinna aðalþjálfarastöðunni tímabundið.

„Allir í okkar fótboltafjölskyldu erum harmi lostin eftir að hafa misst einn af okkur. Ég þekkti Andre vel síðan við unnum saman hjá New Mexico State og ég get sagt ykkur að hann var ótrúleg manneskja og magnaður liðsfélagi. Bænir okkar og samúðarkveðjur fara til fjölskyldu Andre og við syrgjum þennan mikla missi með þeim,“ sagði Nate Dreiling, í fréttatilkynningu skólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×