Lífið

Tanja Ýr á von á barni með breskum her­manni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tanja Ýr og Ryan festu kaup á húsi í úthverfi Manchester í lok nóvember síðastliðinn sem þau ætla að nostra við og gera að sínu.
Tanja Ýr og Ryan festu kaup á húsi í úthverfi Manchester í lok nóvember síðastliðinn sem þau ætla að nostra við og gera að sínu. Skjáskot

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tanja deildi gleðitíðindunum í færslu á Instagram. Á myndunum má sjá fallegar myndir af parinu þar sem óléttkúla Tönju er í aðalhlutverki.

Tanja og Ryan byrjuðu saman í byrjun árs 2022 og hafa komið sér vel fyrir í úthverfi Manchester.

„Hann er í hernum úti og þegar að við kynnumst er hann í þriggja vikna fríi. Þannig að við vorum alltaf saman í þrjár vikur, fórum á ýmis stefnumót, í tívolígarð og alls konar,“ sagði Tanja Ýr í viðtali við Dóru Júlíu í Einkalífinu í október 2023, um fyrstu kynni hennar og Ryan:

„Ég sé þennan hávaxna strák. Ég er bara Oh my god hvað hann er sætur, en ég vissi samt ekki hvernig ég átti að nálgast hann. Þannig að ég kem upp á honum á bar, þar sem enginn var að dansa, og ég spyr hann hvort hann vilji dansa. Og ég man að hann horfði geðveikt skringilega á mig en þá var það af því hann skildi ekkert hvað ég var að segja. Enskan mín er mjög hræðileg. 

Þannig að ég þurfti að segja þetta nokkrum sinnum þangað til að hann loksins skildi hvað ég var að segja, sneri mér í nokkra hringi og eftir það vorum við saman,“ sagði Tanja.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

Tanja Ýr er ein af upprunalegu áhrifavöldum landsins en hún var fljót að uppgötva tækifærin sem fylgdu samfélagsmiðlum. Hún flutti til Bretlands í byrjun árs 2022 til að koma vörumerki sínu Glamista Hair betur fyrir á alþjóðlegum markaði.


Tengdar fréttir

Tanja Ýr Ungfrú Ísland 2013

Tanja Ýr Ástþórsdóttir var kosin Ungfrú Ísland 2013 í fegurðarsamkeppni Íslands sem fram fór á veitingahúsinu Broadway í kvöld. Hún var einnig valin ljósmyndafyrirsæta ársins.

Tanja Ýr leggur augnhárin á hilluna

Frumkvöðullinn og samfélagsmiðlastjarnan Tanja Ýr Ástþórsdóttir hefur ákveðið að hætta með augnháramerki sitt Tanja Ýr Cosmetics. Ætlar hún að einbeita sér að öðrum verkefnum.

Tanja Ýr er komin aftur í samband

Áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir er komin með nýjan kærasta. Hún sagði frá þessu á Instagram í gær og birti af honum myndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×