Lífið

Drengur Ara og Dórótheu kominn með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn en er stödd á Íslandi í sumarfríi.
Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn en er stödd á Íslandi í sumarfríi. Skjáskot

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir létu skíra son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Einar Freyr Arason. 

Parið deildi gleðitíðindunum í sameignlegri færslu á Instagram. Drengurinn er annað barn þeirra saman en fyrir eiga þau hina þriggja ára gömlu Ellen Ingu.

Parið býr nú í raðhúsi í Kaupmannahöfn. Ari Bragi starfar sem trompetleikari með fremstu jazztónlistarmönnum Danmerkur. Á meðan starfar Dórothea sem svæðissölustjóri hjá danska hönnunarfyrirtækinu Design Letters.

Parið hefur búið í Danmörku í þrjú ár, síðan árið 2021. Þau héldu kynjaveislu svo athygli vakti í desember. Þá fengu þau sér köku sem var hvít að utan og kom svo í ljós að hún var blá að innan og drengur þar á ferðinni.


Tengdar fréttir

Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dórthea Jóhannesdóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn en fyrir eiga þau hina þriggja ára gömlu Ellen Ingu.

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á dreng

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kára­son og unnusta hans Dórót­hea Jó­hann­es­dótt­ir eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið tilkynnti á Instgram í gær að von sé á dreng. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×