Lífið

Leifur og Hug­rún orðin for­eldrar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Leifur og Hugrún eignuðust stúlku síðastliðinn föstudag.
Leifur og Hugrún eignuðust stúlku síðastliðinn föstudag. Skjáskot/Leifur

Knattspyrnukappinn og fyrirliði HK í Bestu deild karla, Leifur Andri Leifsson, og kærastan hans Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins og stjórnarmeðlimur FKA, eignuðust stúlku síðastliðinn föstudag. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

„Litla stelpan okkar Hugrúnar ákvað að koma aðeins fyrr í heiminn föstudaginn 19.7.24. Ég er hrikalega stoltur af báðum mínum konum sem heilsast vel,“ skrifar Leifur í færslu á Instagram. Þar má sjá mynd af litlu draumadísinni og nýbökuðu foreldrunum á leiðinni heim af fæðingardeildinni.

Parið greindi frá því í janú­ar að þau ættu von á barni saman í sam­eig­in­legri færslu á In­sta­gram:

„Lítið ljón mætir til leiks í júlí.“ 

Leifur Andri og Hugrún byrjuðu að stinga saman nefjum á síðasta ári og er óhætt að segja að lífið leiki við þau.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×