Lífið

Sjón­skert Barbie lítur dagsins ljós

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Hæ Barbie!
Hæ Barbie! MATTEL

Leikfangaframleiðandinn Mattel, sem á vörumerkið Barbie, hefur gefið út fyrstu blindu Barbie-dúkkuna. Útgáfan er ein af mörgum í vegferð framleiðandans til að láta Barbie-dúkkuna endurspegla sem flesta hópa samfélagsins. 

Blindrastafur og sólgleraugu fylgja nýju dúkkunni og í umfjöllun CNN segir að augnsvipur hennar hafi verið hannaður þannig að hún sé örlítið tileygð. Þá kemur fram að Mattel hafi unnið með nokkrum blindrasamtökum að verkefninu. 

Vörumerkið Barbie sætti gagnrýni í mörg ár fyrir óraunverulegt útlit hinnar hefðbundnu Barbie-dúkku. Árið 2016 hóf Mattel framleiðslu á Barbie-dúkkum með mismunandi líkamsgerðir og þremur árum síðar fengust til að mynda Barbie-dúkkur með gervifætur, heyrnartæki og í hjólastól. 

Barbie-dúkkurnar eru nú eins fjöbreyttar og þær eru margar.Getty

Í fyrra hófst framleiðsla á Barbie-dúkkum með Downs-heilkennið. Meðfram útgáfu sjónskertu Barbie-dúkkunnar hefur Mattel líka hafið framleiðslu á svartri Barbie-dúkku með Downs, sem ekki var fáanleg áður. 


Tengdar fréttir

Barbie nú með Downs

Mattel, framleiðandi hinna sívinsælu Barbie-dúkka, hefur tilkynnt að sú næsta sem fer í framleiðslu verður með Downs-heilkennið. Undanfarin ár hefur fyrirtækið aukið fjölbreytni meðal Barbie dúkkanna í von um að líkja meira eftir raunverulegum konum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×