Lífið

Emil og Ása keyptu 330 milljóna ein­býli í Foss­vogi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ása María Reginsdóttir, Emil Hallfreðsson og börn þeirra tvö.
Ása María Reginsdóttir, Emil Hallfreðsson og börn þeirra tvö.

Hjón­in Emil Hallfreðsson og Ása María Reg­ins­dótt­ir, eig­end­ur Olifa, hafa fest kaup á einbýlishúsi við Bjarmaland 24 í Reykjavík. Hjónin greiddu 330 milljónir fyrir eignina.

Fyrri eigendur eru hjónin, Eyjólfur Baldursson og Þórdís Sigurgeirsdóttir, eigendur verslunarinnar Eirvík.

Umrætt hús er 366,7 fermetrar að stærð og byggt árið 1970. Auk þess eiga þau 300 fermetra einbýlishús við Kinnargötu í Garðabæ.

Emil og Ása hafa búið á Ítal­íu síðastliðin sautján ár þar sem Emil var atvinnumaður í knattspyrnu. Saman eiga hjónin tvö börn.

Emil lék síðustu tvo tímabil með Virtus Verona en árið 2005 fór hann fyrst út í atvinnumennsku frá FH og samdi við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham. Fljótlega lá leiðin til Ítalíu þar sem hann var í sextán ár. Á Ítalíu lék Emil með sex liðum og lengst af hjá Hellas Verona þar sem hann fór með liðinu úr ítölsku C-deildinni upp í Seríu A.

Hann lagði skóna á hilluna í fyrra en er aftur á móti ekki búinn að slíta sig alfarið frá boltanum og rekur í dag knattspyrnuskóla fyrir ungmenni við Gardavatnið á Ítalíu. Þá hefur hann spreytt sig í umboðsmennsku og hafði til dæmis milligöngu um lánssamning Adams Ægis Pálssonar frá Val til Perugia á Ítalíu.

Hjónin reka saman fyrirtækið Olifa, sem flytur inn ítalskan mat, vín og krydd, og veitingastaðinn OLIFA - La Madre Pizza á Suðurlandsbraut.

„Þetta var í eldhúsinu okkar í Udine á Ítalíu, þegar Emil spilaði með Udinese. Þarna byrjuðum við að smakka olíur og leita að vönduðum framleiðendum sem féllu að okkar hugmyndum um uppruna, vinnsluaðferðir, sjálfbærni og svo framvegis. Ég bjó svo til logoið og línurnar voru lagðar fyrir framhaldið. Tíminn leið og 2018 stofnuðum við Olifa á Íslandi formlega. Olifa hefur því núna verið stór partur af lífi okkar síðastliðin fimm ár og er að dafna mjög vel,“ sagði Ása í samtali við Makamál á Vísi árið 2021.


Tengdar fréttir

Lykilatriði að þykja vænt um starfsfólkið

„Vörumerkin eru tíu talsins og verða ellefu á vormánuðum 2022. Allir okkar staðir eiga sína sögu og vörumerkin eru afar fjölbreytt. Sum eru rótgróin og önnur nýrri. Í okkar huga skiptir miklu máli að það sé „hjarta“ í því sem við gerum,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna meðal annars í viðtali um uppbyggingu og virði vörumerkja.

Hlýt að vera heppnasta manneskja í heimi

Segir Ása Reginsdóttir, eiginkona Emils Hallfreðssonar, sem mætti kalla þriðja þjálfarann hans. "Ég er svo innilega með honum í þessu og samvinnan er að skila sér,“ segir Ása. Emil og Ása segja frá HM og lífi sínu á Ítalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×