Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. júlí 2024 17:00 Myndin til vinstri er ein þeirra sem Maya taldi sig hafa glatað, til hægri er svo umrætt minniskort. Facebook Bandarískur brúðkaupsljósmyndari, Maya James, lenti í því leiðindaatviki að týna minniskorti við flugvélaflakið á Sólheimasandi í Íslandsferð fyrr í mánuðinum. Fyrir ótrúlega lukku fann annar bandarískur ferðamaður minniskortið og er nú að koma því til Mayu í pósti.
Bandaríski ferðamaðurinn sem fann kortið heitir Mary Les og birti færslu á Facebook þar sem hún greindi frá fundi sínum. Færslunni var deilt víða um Facebook á hópum eins og Hið Raunverulega Bakland Ferðaþjónustunnar, Góða systir og hópa fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi. Einhvern veginn hafnaði færslan hjá einhverjum sem þekkti til Mayu og þessi óþekkti aðili kom henni í sambandi við þann sem fann kortið. Umturnaði öllu í gistihúsinu Maya lýsir því í samtali við fréttastofu að hún hafi farið til Íslands í hópferð ljósmyndara frá Bandaríkjunum að taka myndir í íslenskri náttúru. Hún hafi ásamt öðrum ljósmyndara í hópnum ákveðið að gera sér ferð út að flugvélaflakinu á Sólheimasandi sem er vinsæll áfangastaður ljósmyndara. „Ég fór með henni og við vorum að taka ótrúlega flottar myndir. Ég hélt svo að ég væri með allar græjurnar mínar með mér þannig við fórum aftur þangað sem við vorum að gista og það var ekki fyrr en seinna um daginn að ég átta mig á því að mig vantar eitt minniskortanna minna,“ segir Maya. Ein myndanna sem tekin var á Sólheimasandi.https://mayapapayapictures.com/ Hún lýsir því að hafa umturnað öllu í gistihúsinu og fengið ferðafélaga sína til að gera slíkt hið sama en án árangurs. „Ég trúði því einlægt að ég sæi þetta kort aldrei framar,“ segir hún. Vaknaði við holskeflu skilaboða Annað reyndist raunin. Þegar hún vaknaði í morgun var innhólfið hennar sneisafullt af skilaboðum frá ljósmyndurum og ferðafélögum sem létu hana vita að kortið hefði komist í leitirnar. „Það var einhver á netinu að leita að mér því hún fann kortið mitt. Með einhverjum ótrúlegum hætti tókst mér að komast í samband við hana og hún er þegar búin að póstleggja kortið,“ segir Maya. Kortið á enn langferð fyrir sér á leið sinni til Arizona þar sem Maya á heima en hún getur fylgst með því nálgast á heimasíðu póstsins. Sex þúsund myndir á kortinu Maya segir að á kortinu hafi verið ríflega sex þúsund myndir frá Íslandsferðinni og meira til. Það hefði verið ömurlegt að tapa því öllu, þó hún hafi verið búin að gefa upp vonina þegar þangað var komið sögu. Tilefni Íslandsferðar Mayu var að vinna samvinnuverkefni í ljósmyndun. Þessi mynd er ein þeirra sem fannst á minniskortinu týnda.https://mayapapayapictures.com/ „Ég er endalaust þakklát ljósmyndarasamfélaginu. Ég heyri oft sögur á samfélagsmiðlum af fólki sem týnir myndavélum, korti eða batteríum og einhvern veginn koma netverjar á endurfundum en aldrei gerði ég mér það í hugarlund að það myndi koma fyrir mig,“ segir Maya. „Það var alveg stórkostlegt að vakna við þessa óvæntu ánægju,“ segir hún að lokum.
Ljósmyndun Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Emil og Ása keyptu 330 milljóna einbýli í Fossvogi Lífið Glæsihöll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir Lífið Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Lífið Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Lífið Engin tilviljun að kaffið bragðaðist „eins og skítur“ Lífið Hildur Sif og Páll Orri ástfangin í Frakklandi Lífið Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Menning Fjárfestir og jógakennari selja 500 fermetra glæsihús í Garðabæ Lífið Kæruleysiskonan slær í gegn á samfélagsmiðlum Lífið Pönnukökur með karamelliseruðum bönunum Lífið Fleiri fréttir Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Pönnukökur með karamelliseruðum bönunum Förðunarfræðingur sem hræðist drauga Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Hildur Sif og Páll Orri ástfangin í Frakklandi Emil og Ása keyptu 330 milljóna einbýli í Fossvogi Sjónskert Barbie lítur dagsins ljós Sól og sæla á Götubitahátíðinni Glæsihöll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir Engin tilviljun að kaffið bragðaðist „eins og skítur“ Bjóða upp á persónuleg hlaupanúmer í Reykjavíkurmaraþoninu Fjárfestir og jógakennari selja 500 fermetra glæsihús í Garðabæ Datt niður stiga tvisvar sinnum sama daginn Fagna tveimur brúðkaupsafmælum á einu ári Kæruleysiskonan slær í gegn á samfélagsmiðlum Mýkt og mínímalismi í Hlíðunum Væri til í bónorð áður en hún deyr Mótandi að hafa alist upp hjá fósturforeldrum „Þetta var augljóslega slys“ Streitulaus heimferð Egils frá Grikklandi breyttist í martröð Leifur og Hugrún orðin foreldrar Fagna afmæli prinsins með nýrri ljósmynd Drengur Ara og Dórótheu kominn með nafn Tanja Ýr á von á barni með breskum hermanni Ritstjóra DV dæmdur ósigur eftir símhringingu „Í dag eru sex ár frá því ég giftist þessum gæja í Verona“ Eyddi tíu milljónum í tískuvörur fyrir kærustuna Stjörnulífið: „Ég er ekkert eðlilega skotin í þessum gæja“ Að drekka áfengi eins og að panta sér vanlíðan á Amazon Sjá meira