Innherji

Verð­bólgan ekki að „taka aftur á skeið“ en leiðin að mark­miði verður löng

Hörður Ægisson skrifar
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, segir áhyggjuefni að minniháttar bakslag mælist í hjöðnun innlendra markaðsverða án flugfargjalda. Hann óttast hins vegar ekki að verðbólgan sé að taka aftur á skeið.
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, segir áhyggjuefni að minniháttar bakslag mælist í hjöðnun innlendra markaðsverða án flugfargjalda. Hann óttast hins vegar ekki að verðbólgan sé að taka aftur á skeið. Kvika

Skörp hækkun verðbólgunnar í júlí, langt umfram spár greinenda, þýðir að möguleg vaxtalækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í næsta mánuði er núna „endanlega út af borðinu,“ að mati aðalhagfræðings Kviku banka, og biðin eftir vaxtalækkunarferlinu gæti jafnvel lengst fram yfir áramót. Það er áhyggjuefni hve yfirskotið er á breiðum grunni og er til marks um að „síðasta mílan“ geti orðið nefndinni óþægur ljár í þúfu.


Tengdar fréttir

Ari­on: Ferð­­a­­þjón­­ust­­a mun sækj­­a í sig veðr­­ið á næst­­a ári

Bakslagið sem er að verða í ferðaþjónustu er aðeins tímabundið, að mati hagfræðinga Arion, fremur en að það sé í vændum „kollsteypa“ líkt og sumir hafa látið í veðri vaka. Aðalhagfræðingur bankans bendir á að vegna of hás raungengis sé útlit sé fyrir gengisveikingu krónunnar horft til næstu þriggja ára sem gæti stutt við atvinnugreinina og ýtt undir lengri dvalartíma ferðamanna.

„Slá­and­i“ verð­bólg­u má lík­leg­a tengj­a við kjar­a­samn­ing­a

Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×