Lífið

Anna Lilja nældi sér í fjár­festi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Anna Lilja fann ástina í örmum Gests Breiðfjörð fjárfestis.
Anna Lilja fann ástina í örmum Gests Breiðfjörð fjárfestis.

Anna Lilja Johansen athafnakona og Gestur Breiðfjörð Gestsson fjárfestir eru nýtt par. 

Anna Lilja skrifaði einlæga afmæliskveðju til Gests á Facebook þann 23. júlí síðastliðinn í tilefni 49 ára afmælis hans. Þar má einnig sjá fallegar myndir af parinu saman:

„Hann er hlýr, skemmtilegur dugnaðarforkur sem hugsar óendanlega vel um fólkið sitt. Til hamingju með daginn þinn ástin mín.“

Nýverið setti Gestur hús sitt og fyrrverandi eiginkonu sinnar Önnu Maríu Sigurðardóttur, jógakennara og eiganda Yogavitund í Garðabæ, við Votakur í Akrahverfinu á sölu. 

Anna Lilja var áður í gift, Þorsteini M. Jónssyni, þekktur sem Steini í kók. Saman eiga þau eina stúlku.

Þá var hún í sambandi með Grími Alfreð Garðarsyni, sem hefur verið öflugur í viðskiptalífinu, og hæstaréttarlögmanninum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni til nokkurra ára. Anna Lilja og Vilhjálmur eiga saman einn son.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×