Lífið

Hræddur um líf eigin­konu sinnar

Máni Snær Þorláksson skrifar
Harrý er hræddur um að fara með Meghan Markle heim til Bretlands. Hann segist óttast um líf hennar.
Harrý er hræddur um að fara með Meghan Markle heim til Bretlands. Hann segist óttast um líf hennar. EPA/Christopher Neundorf

Harrý Bretaprins vill ekki fara með Meghan Markle aftur til Bretlands. Hann segist vera raunverulega hræddur um líf hennar.

„Það er ennþá hættulegt, allt sem þarf er bara einn einstaklingur, ein manneskja sem ákveður að gera það sem búið er að skrifa,“ segir Harrý í viðtali við nýja heimildarmynd ITV.

Þegar prinsinn talar um það sem hefur verið skrifað á hann við hótanir sem borist hafa Markle. Neil Basu, fyrrverandi yfirmaður hjá lögreglunni í London, sagði árið 2022 að raunverulegar líflátshótanir hafi borist Markle á meðan hún bjó í Bretlandi.

„Hvort sem það er hnífur eða sýra, hvað sem það er, ég hef raunverulegar áhyggjur af þessu. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég mun ekki koma með eiginkonuna mína aftur til þessa lands.“

Harrý segir að hann geti ekki sett Markle í hættu, sérstaklega af „gefinni reynslu hans í lífinu.“ Hann tekur ekki fram hvað hann á við en að öllum líkindum er hann að tala um móður sína, Díönu prinsessu, sem lést árið 1997.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×