Lífið

Guðni hljóp í Kerlingar­fjöllum og flutti sitt síðasta á­varp

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Meðal þátttakenda var Guðni Th. Jóhannesson, fráfarandi forseti Íslands, en hann ræsti út flokkinn í 22 kílómetra hlaupinu, og flutti í leiðinni sitt síðasta formlega ávarp í embætti.
Meðal þátttakenda var Guðni Th. Jóhannesson, fráfarandi forseti Íslands, en hann ræsti út flokkinn í 22 kílómetra hlaupinu, og flutti í leiðinni sitt síðasta formlega ávarp í embætti. Bláa lónið

Fjallahlaupið Kerlingarfjöll ULTRA var haldið í fyrsta skiptið í blíðskaparveðri í gær. Keppendur spreyttu sig á þremur vegalengdum á miðhálendinu og tókust á við krefjandi aðstæður með bros á vör. Guðni fráfarandi forseti var meðal þátttakenda og flutti þar sitt síðasta formlega ávarp.

„Þetta er fyrsta Kerlingarfjöll ULTRA hlaupið og því sérstaklega ánægjulegt að það hafi verið uppselt nánast um leið og við buðum fólki að skrá sig. Viðburður af þessu tagi hefur alla burði til þess að vera lyftistöng fyrir svæðið allt og hvetur okkur jafnframt til að hlúa að náttúrunni, aðstöðunni, og svæðinu í heild sinni,“ segir Magnús Orri Marínarson Schram, starfandi framkvæmdastjóri Kerlingarfjalla-Highland Base.

Landslagið er engu líktBláa lónið

Leiðirnar lágu um líparíteldstöð

Hlaupaleiðirnar í ár voru þrjár: 12 kílómetrar, 22 kílómetrar og 63 kílómetrar. Leiðirnar lágu um 320 þúsund ára gamla líparíteldstöð.

Hlauparar spreyta sig í stórfenglegri náttúru Kerlingarfjalla.Bláa lónið

„Ógnaröfl náttúrunnar hafa mótað Kerlingarfjöll í aldanna rás, þannig að eftir standa sundurskorin háhitasvæði, hyldjúp gljúfur, jökulflákar og stórbrotnir fjallstindar, að ógleymdri sjálfri Kerlingunni - dranganum sem fjöllin draga nafn sitt af,“ segir í tilkynningu.

Íslensk fjallahlaup að sækja í sig veðrið

Í tilkynningu segir að fjallahlaup sem reyni á úthald, aðlögunarhæfni og getu hafi verið að sækja í sig veðrið hérlendis og að umhverfi hálendisins sé kjörið fyrir hlaupara sem sækjast eftir fjölbreyttum áskorunum.

„Hálendi Íslands er einstakt og hlauparar og aðrir sem vilja njóta útivistar í ævintýralegu umhverfi lögðu leið sína í Kerlingarfjöll til þess að taka þátt eða hvetja aðra,“ segir Helga María Heiðarsdóttir, framkvæmdastjóri Útihreyfingarinnar og hlaupsins. Hún kveðst hæstánægð með helgina og áhugann á hlaupinu.

Hlauparar koma í markBláa lónið
HlaupariBláa lónið

Tengdar fréttir

Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina

Um helgina verður fyrstu gestunum hleypt ofan í nýjan baðstað í Kerlingarfjöllum. Í böðunum eru meðal annars heitar setlaugar, kaldur pottur og glæsileg sauna með útsýni yfir fjallgarðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×