Lífið

Stjörnulífið: Sól­ríkir bossar og stór­kost­legir magavöðvar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnurnar höfðu nóg að gera í vikunni sem leið.
Stjörnurnar höfðu nóg að gera í vikunni sem leið.

Stjörnur landsins halda áfram að leita í sólina sem lætur lítið fyrir sér fara hérlendis. Síðastliðin vika var þó viðburðarík á Íslandi þar sem útileigur, tónlistarhátíðir og önnur veisluhöld vöktu athygli. 

Ofurskvísur á bát

Instagram stjarnan Sunneva Einarsdóttir naut lífsins í bikiníi á bát í Króatíu. 

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr var með í för á bátnum. 

Ofurskvísan Brynja Bjarna er sömuleiðis stödd í Króatíu með hópi áhrifavalda og skartaði eldrauðu dressi á sólríku kvöldi. 

TikTok stjarnan Brynhildur Gunnlaugs naut sín fáklædd í króatískri sól. 

Stjörnur í sólinni

Leikkonan Hildur Vala sem hefur sannarlega slegið í gegn sem Elsa í Frost fagnaði 32 ára afmæli sínu í ítalskri blíðu í héraðinu Tuscany með Kjartani Ottóssyni manni sínum og tveimur börnum.

Rapparinn Herra Hnetusmjör og plötusnúðurinn Egill Spegill nutu sín í sólinni og tróðu upp í brúðkaupi á meginlandinu. 

Ísstrákurinn og stjarnan Rúrik Gíslason er á leið í æfingaferð til Austurríkis til að undirbúa sig fyrir væntanlega kvikmynd. Spennandi!

Rapparinn Aron Can flexaði six-packið í Prag. Rúrik Gíslason skrifaði athugasemd við færsluna þar sem hann segir meðal annars: „Ætla ekki að reyna að rate-a þetta greatest sixpack í sögu sixpack-a!“

Borgarstjórahjónin Einar Þorsteinsson og Milla Magnúsdóttir segja að setningarhátíð Ólympíuleikanna hafi unnið fyrsta gullið og létu rigninguna ekkert á sig fá. 

Ferðalög innanlands

Tónlistarkonan og ofurstjarnan Bríet er búin að vera á ferð um landið og hefur í kjölfarið haldið farsæla tónleika víða. 

Þá tróðu tónlistarstjörnur á borð við GDRN og Kæluna miklu upp á hátíðinni Bræðslunni í Borgarfirði Eystra við mikinn fögnuð en hátíðin var vel sótt í ár. 

Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir skemmti sér vel á Bræðslunni með eiginmanni sínum Sóla Hólm og góðum vinum. 

Útvarpskonan Þórdís Valsdóttir var sömuleiðis þar og kærasti hennar Hermann. 

Markaðsskvísan Sigríður fagnaði ástinni í brúðkaupi fyrir vestan í hvítum pallíettukjól.

Ofurþjálfarinn Gerða In Shape giftist ástinni sinni í sveitasælu.

Reykjavíkurvíbrur og Druslugangan

Tískugoðið Gummi Kíró átti huggulegan og smart sunnudag. 

Elín Sif Hall og Katla Þórudóttir Njálsdóttir fluttu nýja lagið sitt Frekjukast á Druslugöngunni í Reykjavík á laugardaginn.

Förðunarfræðingurinn Lilja Gísladóttir skemmti sér vel við að gæsa vinkonu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×