Veður

Illvænlegar vendingar á veður­spánni fyrir helgina

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Útlit er fyrir vætu um allt land.
Útlit er fyrir vætu um allt land. Vísir/Sigurjón

Illvænlegar vendingar hafa orðið á veðurspánni fyrir verslunarmannahelgina að mati Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Hann heldur uppi síðunni Bliku.is en þar birti hann uppfærslu í morgun þar sem hann segir lægðina djúpu sem fer fyrir austan land virðast ætla að hætta sér nær Íslandsströndum og sækja í sig veðrið.

Í gær spáði hann besta degi sumarsins í Reykjavík á laugardaginn og hlýjum blæstri með svolítilli vætu víða um land. Hann sagði lægðina djúpu ekki koma til með að skemma fjör Íslendinga í ferðahug um helgina.

Í dag segir hann breytingu hafa orðið í spánni frá evrópsku reiknimiðstöðinni. Breytingarnar felist einkum í því að þessi téða djúpa lægð verði nærgöngulli og kraftmeiri en ætlað var.

Sjá lægðina á spákorti evrópsku reiknimiðstöðvarinnar.Evrópska reiknimiðstöðin

„Sjáum á spákorti fyrir laugardag að lægðinni er nú spáð nánast uppi í landsteinunum. Og það sem er mestu um vert að í stað þess að hún haldi áfram í rólegheitunum í átt til Skotlands, hægir hún á sér og verður frekar á hringsóli,“ skrifar Einar á síðu sinni.

Hann segir það eiga eftir að hafa mikil áhrif. Meira verði úr rigningunni og nýr bakki fari vestur með suðurströndinni. Jafnframt verði minna úr hlýja loftinu sem spáð var norðan- og norðvestantil og meira úr vindi.

„Miðað við þetta sleppur enginn landshluti alveg við vætu. Mest suðaustantil og á Austfjörðum, en um norðvestanvert landið einkum framan af eða fram á laugardag, en síðan að líkindum alveg þurrt,“ skrifar Einar.

Hann segir þó spá GFS, bandarískrar veðurvakt, talsvert heillavænlegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×