Sport

Úlf­úð á Ólympíu­leikunum: „Hef aldrei verið slegin svona áður“

Aron Guðmundsson skrifar
Imane Khelif bar sigur úr býtum gegn hinni ítölsku Angelu Carini í hnefaleikum á Ólympíuleikunum í París fyrr í dag. Ekki eru allir á eitt sáttir með að Khelif hafi fengið þátttökurétt í hnefaleikum á Ólympíuleikunum eftir að henni var vikið af HM á síðasta ári fyrir að hafa ekki staðist kynjapróf.
Imane Khelif bar sigur úr býtum gegn hinni ítölsku Angelu Carini í hnefaleikum á Ólympíuleikunum í París fyrr í dag. Ekki eru allir á eitt sáttir með að Khelif hafi fengið þátttökurétt í hnefaleikum á Ólympíuleikunum eftir að henni var vikið af HM á síðasta ári fyrir að hafa ekki staðist kynjapróf. Vísir/EPA

Þátt­taka hinnar alsírsku Ima­ne Khelif í kvenna­flokki í hnefa­leikum á yfir­standandi Ólympíu­leikum í París hefur valdið fjaðra­foki. Khelif var meinuð þátt­taka á heims­meistara­móti síðasta árs eftir að hafa ekki staðist kynja­próf.

Hin ítalska Angela Carini bað um að bar­dagi sinn við Khelif, á Ólympíu­leikunum fyrr í dag, yrði stöðvaður eftir að að­eins 46 sekúndur höfðu liðið af honum. „Ég hef aldr­ei verið slegin svona áður,“ sagði Carini eftir bar­dagann.

Khelif er ein tveggja kepp­enda til þess að fá leyfi til þess að keppa í flokki kvenna í hnefa­leikum á Ólympíu­leikunum í París eftir að hafa verið vikið frá keppni á heims­meistara­mótinu í fyrra. Mót sem Al­þjóðahnefa­leika­sam­bandið (IBA) skipuleggur.

Khelif var dæmd úr keppni á heims­meistara­mótinu í hnefa­leikum í fyrra, þar sem að hún keppti í velti­vigtar­flokki, eftir að hafa ekki upp­fyllt þær kröfur sem gerðar eru til kepp­enda með kynja­prófi. En reglurnar koma í veg fyrir að íþróttamenn með XY-litninga keppi í kvennagreinum.

Al­þjóðaólympíu­nefndin (IOC) segir á­stæðuna fyrir brott­vísun Khelif frá keppni á heims­meistara­mótinu hafa stafað af of háu gildi testó­sterón hormóns í líkams­starf­semi hennar.

Álitamál eru uppi um hvort að Khelif sé Intersex einstaklingur. Intersex einstaklingar fæðast með einkenni sem eru ekki algjörlega karl- eða kvenkyns; sem eru sambland af karl- og kvenkyns; eða sem eru hvorki karl- né kvenkyns. Nánari fróðleik má nálgast á síðu Hinsegin frá A til Ö. sem og heimasíðu Intersex Ísland.

Fékk nóg eftir 46 sekúndur

Khelif, sem einnig keppti á Ólympíu­leikunum í Tókýó, mætti til leiks í annarri um­ferð hnefa­leika­keppninnar á yfir­standandi Ólympíu­leikum og mætti þar hinni ítölsku Angelu Carini.

Eftir þrjá­tíu sekúndna bar­daga og þungt högg í höfuð bað Carini um að hlé yrði gert á bar­daganum til þess að hún gæti fengið þjálfara sinn til þess að laga höfuð­vörn sína.

Bar­daginn hélt svo á­fram í nokkrar sekúndur eftir það en þá fékk Carini annað þungt höfuð­högg frá Khelif og þá bað sú ítalska um að bar­daginn yrði stöðvaður eftir að 46 sekúndur höfðu liðið af fyrstu lotu.

Khelif slær frá sér í bardaganum fyrr í dagVísir/Getty

Khelif var úr­skurðuð sigur­vegari bar­dagans. Skömmu áður en dómarinn lyfti hendi hinnar alsírsku og úr­skurðaði hana sigur­vegarann mátti heyra Carini segja „þetta er ekki rétt­látt“ og í kjöl­farið brotnaði sú ítalska niður í hringnum.

„Ég er niðurbrotin,“ sagði Carini eftir bardagann en The Guardian greinir frá. „Ég steig inn í hringinn til þess að heiðra minningu föður míns. Ég hef oft fengið að heyra það að ég sé stríðskona en ég ákvað að hætta keppni heilsu minnar vegna. Ég hef aldrei verið slegin svona áður.

Ég steig inn í hringinn til þess að berjast. Ég gafst ekki upp en eitt höggið særði mig of mikið þannig að ég kallaði þetta gott. Ég fer héðan og get borið höfuðið hátt.“

Khelif var úrskurðaður sigurvegari bardagans gegn Carini eftir að sú ítalska bað um að hann yrði stöðvaður eftir að 46 sekúndur höfðu liðið af fyrstu lotu.Vísir/EPA

Ekki sömu kröfur gerðar til keppenda

Khelif er komin í átta manna úr­slit á Ólympíu­leikunum í París en upp­á­koman í morgun hefur vakið upp spurningar og gagn­rýni í garð Al­þjóðaólympíu­nefndarinnar fyrir að veita Khelif, sem og Lin Yu-ting frá Taí­van, sem einnig var vikið frá HM í fyrra, keppnis­leyfi á Ólympíu­leikunum.

Al­þjóðahnefa­leika­sam­bandið (IBA), sem sér um skipulagningu á heims­meistara­mótinu sem Khelif og Lin var vikið af í fyrra, kemur ekki að keppni í hnefa­leikum á Ólympíu­leikunum. 

Ný­verið gaf sam­bandið út yfir­lýsingu þar sem það furðaði sig á því að Khelif og Lin hafi fengið keppnis­leyfi í flokki kvenna á Ólympíu­leikunum í París.

Carini féll niður á hné og brotnaði saman eftir bardagann.Vísir/Getty

Khelif hafi staðist allar kröfur

IBA var svipt yfir­um­sjón með hnefa­leikum á Ólympíu­leikunum af Al­þjóðaólympíu­nefndinni eftir að sam­bandinu mis­tókst að koma á um­bótum á stjórnar­háttum sínum, fjár­málum og sið­ferðis­legum á­lita­málum sem upp höfðu komið.

Mark Adams, tals­maður Al­þjóðaólympíu­nefndarinnar, hefur varið á­kvörðun nefndarinnar að veita Khelif og Lin keppnisleyfi í hnefaleikum á Ólympíuleikunum.

„Allar sem keppa í kvenna­flokki hafa upp­fyllt öll okkar við­mið um keppnis­hæfi í flokknum,“ hefur Adams látið hafa eftir sér í fjöl­miðlum.

Ólympíu­samband Alsír for­dæmir þær „til­hæfu­lausu á­rásir“ sem nefndin segir Khelif hafa orðið fyrir.

Þá furðar Eu­genia Roccella, fjöl­skyldu- og jafn­réttis­mála­ráð­herra Ítalíu, sig á því ekki séu við lýði á­kveðin og ströng sam­ræmd við­mið um keppni og keppnis­hæfi í hnefa­leikum á al­þjóða­vett­vangi.

Full­trúar, sem Al­þjóðaólympíu­nefndin skipaði sjálf, sjá um keppni í hnefa­leikum á Ólympíu­leikunum í París og segjast þeir styðjast við reglu­bók sem farið var eftir í keppni í hnefa­leikum á Ólympíu­leikunum árið 2016 í Rio de Janeiro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×