Lífið

Halla fann efnið í New York

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Halla við komu á Bessastaði þar sem hún hélt sitt fyrsta Bessastaðateiti.
Halla við komu á Bessastaði þar sem hún hélt sitt fyrsta Bessastaðateiti. vísir/rax

Halla Tómasdóttir kom að máli við Björgu Ingadóttur fatahönnuð í byrjun júní í því skyni að fá Björgu til að hanna kjóla fyrir innsetningarathöfn sína. Svo fór að Björg hannaði tvo kjóla fyrir daginn, en Halla fann efnið í annan þeirra í New York. 

Halla tók við embætti sem sjöundi forseti Íslands í gær við hátíðlega athöfn. 

„Hún vildi vera í íslenskri hönnun í sínum anda. Ég tók þessari áskorun að sjálfsögðu opnum örmum. Það hvernig konur klæða sig virðist oft hafa mikið vægi í hugum fólks og stundum virðast allir hafa skoðun á því sem verður fyrir valinu. Þetta á sérstaklega við um konur í áhrifastöðum eða þær sem eru í sviðsljósinu, sem gerði þetta tiltekna verkefni bara enn meira spennandi,“ segir Björg við Vísi.

Björg Ingadóttir rekur fataverslunina Spaksmannsspjarir.Vísir/ Geir Ólafsson

Tíminn hafi verið knappur og erfitt að finna rétt efni, sérstaklega hér á landi.

„Við lögðum því báðar af stað í leit að efnum. Ég fann efnið í ljósa kjólinn í erlendri vefverslun og Halla fann efnið í rauða kjólinn fyrir kvöldið í New York. Þar sem Halla var ekki væntanleg aftur til landsins fyrr en 22. júlí, voru hefðbundnar sérsaumsaðferðir ekki í boði.“

Nýjar 3D aðferðir komu til bjargar. 

Björn og Halla, hin nýju forsetahjón.vísir/rax

„Við tókum líkamsmál af henni áður en hún fór erlendis og út frá þeim var gerður avatar. Ég gat því hannað og útfært margskonar útfærslur og mátað á „avatarinn“ hennar Höllu,“ segir Björg. 

„Þetta er hennar stóri dagur og auðvitað vil ég að hún sé sem glæsilegust en á sama tíma vil ég að kjólinn eldist fallega, henti tilefninu og þeirri umgjörð sem embættinu fylgir. Forsetakeðjan og orðan þarf til dæmis að njóta sín á kjólnum. Ég vildi því hafa hann einfaldan og tímalausan en leggja sérstaka áherslu á hálsmálið og að það myndi vinna vel með forsetakeðjunni.“

Halla gengur úr Alþingishúsinu í hvíta kjólnum. vísir/rax

Björgu þótti mikilvægt að Halla væri í svipuðum stíl allan daginn þannig að ákveðið jafnvægi myndast á milli dags og kvölds. 

„Vínrauður litur varð fyrir valinu á hinum kjólnum. Höllu klæðir mjög vel vínrautt og kóralrautt, sem er svolítið sérstök litasamsetning sem mér fannst gaman að blanda saman: vínrauði liturinn í ullarefninu og kóralrauði liturinn í miðseymi á kraga og ermalíningu - litasamsetningin gengur fullkomlega upp,“ segir Björg.“

Björg vildi að krossinn fengi að njóta sín. vísir

Ferlinu lýsir Björg þannig að sniðin hafi verið útfærð í 2D og saumuð í 3D með stafrænum efnaskrám. Sniðin voru loks prentuð og settar í hendur Lilju Bjargar Rúnarsdóttur sem saumaði flíkurnar í raunverulegu efnin.

„Þetta hönnunarverkefni sameinaði nýsköpun, tækni og handverk á einstakan hátt. Það var óviðjafnanleg upplifun að sjá stafrænt handverk og hefðbundið handverk vinna fullkomlega saman og ég er virkilega ánægð með útkomuna. Mér finnst flíkurnar fagurfræðilega sterkar og fullkomlega í anda frú Höllu Tómasdóttur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×