Sport

Hnefa­leika­konurnar fórnar­lömb í valda­brölti manns sem líkir for­seta IOC við djöfulinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Imane Khelif fór grátandi í burtu eftir sigurinn á Anna Luca Hamori. Það er erfitt að ímynda sér hvað hún hefur gengið í gegnum síðustu daga en nú er ljóst að hún fær verðlaun á þessum Ólympíuleikum.
Imane Khelif fór grátandi í burtu eftir sigurinn á Anna Luca Hamori. Það er erfitt að ímynda sér hvað hún hefur gengið í gegnum síðustu daga en nú er ljóst að hún fær verðlaun á þessum Ólympíuleikum. Getty/Mehmet Murat Onel

Hnefaleikakeppni Ólympíuleikanna í París hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu daga en því miður ekki vegna árangursins inn í hringum heldur vegna ástæðulausra áskanna um að tveir keppendur í kvennakeppninni séu karlmenn í dulargervi.

Hnefaleikakonurnar eru Imane Khelif frá Alsír og Lin Yu-ting frá Taívan. Þær hafa keppt um árabil sem konur, ólust upp sem konur og eru konur í vegabréfi sínu. Þær standast allar þær kröfur sem Alþjóðaólympíusambandið setur.

Umar Kremlev er forseti Alþjóðahnefaleikasambandsins.Getty/Maksim Konstantinov

Samt máttu þær þola ásakanir um svindl og um að vera í raun karlmenn að berja konur og svo mikla athygli vakti þetta mál að meira að segja Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, er farinn að tala um þetta mál í kosningabaráttu sinni.

Ráku þær báðar úr keppni á HM

Fyrir þá sem þekkja ekki nógu vel til í hnefaleikaheiminum þá er óvissan komin til vegna þess að það var Alþjóðahnefaleikasambandið sem rak þær Khelif og Yu-ting úr keppni á heimsmeistaramótinu í fyrra. Þær stóðust þá ekki kynjapróf Alþjóðahnefaleikasambandsins (IBA) sem skipuleggur HM. AP fréttsofan fjallar um málið og má sjá athyglisverða grein hér.

Það var þó ekki fyrr en Khelif vann rússnesku hnefaleikakonuna Azalia Amineva á umræddu HM sem stjórnarmenn Alþjóðahnefaleikasambandsins risu upp og vísuðu henni úr keppni.

Rússinn Umar Kremlev ræður ríkjum hjá Alþjóðahnefaleikasambandinu og aðalstyrktaraðili þess er rússneski eldsneytissalinn Gazprom. Sambandinu er stjórnað frá Rússlandi.

Í stríði við Alþjóðaólympíunefndina

Umræddur Kremlev er líka í stríði við Alþjóðaólympíunefndina eftir að Alþjóðahnefaleikasambandið hans missti öll völd sín í hnefaleikakeppni Ólympíuleikanna. Fram að því hafði IBA komist upp með alls konar skandala og óstjórn en árið 2019 sagði Alþjóðaólympíunefndin hingað og ekki lengra.

Aðalástæðan voru sterk tengsl Alþjóðahnefaleikasambandsins við rússnesku mafíuna og skipulagða glæpastarfsemi en Kremlev hafði komist til valda tveimur árum fyrr.

Í framhaldinu hefur aðildarþjóðum sambandsins fækkað mikið og næstum öll hnefaleiksamböndin í hinum vestræna heimi hafa sagt skilið við IBA.

Síðan þá hefur Alþjóðahnefaleikasambandið heldur ekki fengið að koma að keppninni á Ólympíuleikunum og það er augljóst að öllu að árásir Kremlev eru hluti valdabaráttu hans.

Fórnarlömb í valdabrölti einræðisherra

Því miður eru hnefaleikakonurnar tvær í fórnarlömb í valdabrölti einræðisherra IBA og þetta er í raun einhliða barátta því Alþjóðaólympíunefndin vill ekkert með hann hafa.

Hnefaleikasambönd Alsír og Taívan, sambönd hnefaleikakvennanna tveggja, sem hafa mátt þola þessar árásir, eru þó enn meðlimir í IBA sem flækir málið.

Kremlev ætlar líka að borga verðlaunahöfum á leikunum og þjálfurum þeirra meira en 3,1 milljón dollara í verðlaunafé. Það gerir hann þótt að IBA komi ekki að skipulagningu keppninnar og margir af sigurvegurunum keppi fyrir sambönd sem eru ekki lengur í Alþjóðahnefaleikasambandinu.

Ætlar að senda forseta IOC bleyjur

Kremlev hefur notað öll tækifæri til að drulla yfir Alþjóðaólympíusambandið og þá sérstaklega hefur hann úthúðað Thomasi Bach, forseta IOC.

Thomas Bach, framkvæmdastjóri alþjóða Ólympíunefndarinnar.Getty

Á samfélagsmiðlum hafa komið inn hvert myndbandið á fætur öðru þar sem Kremlev talar ensku og segir Bach til syndanna.

Kremlev segir Bach vera vondan mann og líkir honum við djöfulinn. Hann heimtar að Bach segir af sér og segist ætla að senda forseta IOC bleyjur svo hann skíti ekki í brækurnar.

Það eru líka miklar líkur á því að þetta verði síðasta hnefaleikakeppnin á Ólympíuleikunum því Alþjóðaólympíunefndin hefur hótað því að taka hnefaleikana af keppnisdagskrá leikanna í Los Angeles 2028 taki hnefaleikaheimurinn ekki til í sínum stjórnarháttum. Með Kremlev og félaga við völd eru engar líkur á slíku.


Tengdar fréttir

Carini vill biðja Khelif afsökunar

Ítalska hnefaleikakonan Angela Carini, sem bað um að bardagi sinn á Ólympíuleikunum gegn hinni alsírsku Imane Khelif yrði stöðvaður eftir aðeins 46 sekúndur, vill nú biðja hana afsökunar á framferði sínu.

Ólympíunefndin skýtur föstum skotum á hnefaleikasambandið

Al­þjóðaólympíu­nefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Ima­ne Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×