Lífið

Heitustu hin­segin pör landsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Listinn, sem samanstendur af heitum hinsegin pörum, er síður en svo tæmandi.
Listinn, sem samanstendur af heitum hinsegin pörum, er síður en svo tæmandi.

Hinsegin dagar voru haldnir hátíðlega í liðinni viku þar sem ástinni og fjölbreytileikanum var fagnað með glæsibrag. Í tilefni hátíðarinnar setti lífið á Vísi saman lista sem samanstendur af hinsegin pörum sem eiga það sameiginlegt að vera flottar fyrirmyndir.

Páll Óskar og Edgar Antonio

Páll Óskar og Edgar Antonio Lucena Angarita stálu senunni á brúðartertunni!Viktor Freyr/Vísir

Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson og Edgar Antonio Lucena Angarita kynntust í janúar í fyrra í gegnum stefnumótaforritið Gindr, sem má segja að sé Tinder fyrir homma. Þeir létu pússa sig saman heima í stofu í 27. mars síðastliðinn. 

Páll Óskar og Antonio voru saman efst á stærðarinnar brúðartertu, í Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag, og stálu senunni.

Páll Óskar og Antonio deildu sviðinu á brúðkaupstertu


Margrét Rán og Bryndís Hrönn

Margrét Rán er söngkona hljómsveitarinnar Vök og hefur einnig sungið með hljómsveitinni GusGus. Bryndís starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík. Saman eiga þær eina dóttur.

„Verð alltaf aðeins öðruvísi skotin í henni þegar hún er uppi á sviði“


Íris Tanja og Elín

Tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir og dans- og leikkonan Íris Tanja Flygering opinberuðu samband sitt í mars 2022. Í október sama ár trúlofuðu þær sig eftir að Íris fór á skeljarnar. Samtals eiga þær þrjú börn. Lífið virðist leika við parið sem flutti nýverið inn saman í nýja íbúð í Vogahverfinu í Reykjavík. 


Jafet Máni og Rúnar 

Jafet Máni Magnússon og Rúnar Gíslason kynntust fyrir rúmlega þremur árum síðan og búa í dag saman í fallegri íbúð í miðbæ Reykjavíkur.

Jafet hefur komið að fjölbreyttum verkefnum tengdum leiklist og dagskrárgerð auk þess að starfa sem flugþjónn hjá Icelandair. Rúnar starfar hins vegar hjá embætti Héraðssaksóknara og hefur verið í lögreglunni undanfarin sjö ár.

„Við erum ó­­­mögu­­legir án hvor annars“


Ingileif og María Rut

instagram

Ingileif Friðriksdóttir sjónvarps-og fjölmiðlakona og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, kynntust árið 2013, þá kom Ingileif einnig út úr skápnum eftir að hafa reynt að stíga skrefið í nokkrar vikur. 

Þær hafa verið saman í rúman áratug og giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018. Saman búa þær í Vesturbæ Reykjavíkur og eiga þrjú börn.

Ást er: „Er ótrúlega lánsöm að hafa nælt í hana“


Helgi og Pétur 

Helgi og Pétur Björgvin.Helgi Ómars

Helgi Ómarsson, ljósmyndari og áhrifavaldur, og Pétur Björgvin Sveinsson markaðssérfræðingur opinberuðu samband sitt í lok árs 2022. Parið trúlofaði sig 3. mars 2023 þegar Pétur skellti sér á skeljarnar í göngutúr á föstudegi um Paradísardal. 

Helgi og Pétur hafa ekki enn planað brúðkaupið. Helgi horfir þó mikið til skandinavískra brúðkaupa og dreymir um látlaust sveitabrúðkaup. 

Huggulegustu hommar landsins keyptu hönnunarperlu í 101


Bjarni og Bjarmi

Bjarni Snæbjörnsson, leikari, leikskáld og athafnastjóri, og Bjarmi Fannar vöruhönnuður og flugþjónn.

Bjarni er leikari og leikskáld og er hvað þekktastur fyrir leikritið Góðan daginn faggi sem var sýnt um allt land. Sömuleiðis er hann höfundur bókarinnar Mennska. Parið hafði verið saman í nokkur ár áður en þeir gengu í hjónaband í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. júní síðastliðinn við litla og einlæga athöfn.

Þakklátir að búa í landi þar sem þeir geta gifst ástinni sinni


Elísabet Blöndal og Eva Jenný

Hjónin Elísabet Blöndal ljósmyndari og Eva Jenný Þorsteinsdóttir myndlistakona kynntust árið 2012 en leiðir þeirra lágu ekki saman fyrr en tveimur árum síðar. Saman eiga þær tvö börn.

Áhugamál parsins sameinast í listræna heiminum og dreymir þær um að opna sameignlegt listastudio á næstu árum.

„Við eigum ekki hvor aðra heldur veljum við hvor aðra“


Dóra Dúna og Guðlaug

Dóra Dúna Sighvatsdóttir ljósmyndari og Guðlaug Björnsdóttir förðunarfræðingur byrjuðu saman í byrjun árs 2022. Eftir átta mánaða samband bað Dóra um hönd Guðlaugar þar sem þær voru staddar í fríi á Ítalíu.

„Eftir fyrsta kossinn vissum við báðar að við þráðum ekkert heitar en að vera saman, sem er líklega ástæðan fyrir því hvað hlutirnir gerast hratt,“ sagði Guðlaug í samtali við Vísi. 

Dóra og Guðlaug létu pússa sig saman við litla athöfn í Fríkirkjunni í júlí í fyrra. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson gaf þær saman en hann skírði yngstu dóttur þeirra þremur vikum fyrr. Fyrir á Guðlaug tvo syni og eina dóttur.

Bréf dóttur upphafið að ógleymanlegu bónorði

Bergþór og Albert 

Albert og Bergþór á horninu þar sem þeir hittust fyrst. Þessi mynd prýddi boðskortið í giftinguna.

Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson eru vel þekktir gleðigjafar, Bergþór sem einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og Albert af mat­seld sinni og vefmiðlinum albert­eldar.com. 

Þeir hafa verið framarlega í flokki þeirra Íslendinga sem kalla má fagurkera enda sækir fólk í ráðleggingar til þeirra varðandi veisluhöld meðal annars. Þeir giftu sig árið 2016 eftir átján ára trúlofun.


Svavar Örn og Daníel

Hárgreiðslumennirnir Svavar Örn Svavarsson og Daníel Örn Hinriksson giftu sig þann 14. ágúst 2022 eftir nítján ára samband. Svavar Örn sér um útvarpsþáttinn Bakaríið á Bylgjunni á laugardagsmorgnum ásamt Ásu Ninnu Pétursdóttur.

Daní­el Örn og Svavar Örn eru miklir dýravinir og var Daníel formaður hundaræktarfélag Íslands árið 2022 auk þess sem hann sá um þættina Besti vinur mannsins á Stöð 2 árið 2016.


Siggi Gunnars og Sigmar Ingi

Fjölmiðamaðurinn Sigurður Þorri Gunnarsson, þekktur sem Siggi Gunnars, og Sigmar Ingi Sigurgeirsson opinberuðu samband sitt í byrjun árs 2023.

Siggi starfar í dag sem tónlistarstjóri Rásar 2 en starfaði lengi vel hjá útvarpsstöðinni K100. Sigmar starfar sem deildarstjóri Tómstundamiðstöðvarinnar hjá Lækjarskóla í Hafnarfirði.


Listinn er síður en svo tæmandi og mætti lengi telja og nefna fleiri glæsileg hinsegin pör sem ættu heima á listanum.


Tengdar fréttir

Dró Antonio grunlausan með sér í Gamla bíó

„Hann vissi ekkert hver ég var þegar hann kynnist mér. En eftir tvo daga, ég held að það hafi verið á miðvikudegi, sagði ég við hann: „Ég verð að segja þér við hvað ég vinn,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson sem dró eiginmann sinn, Edgar Antonio Lucena Angarita, með sér á skólaball í Gamla bíói. 

Stjörnulífið: Gleðigangan, ástin og Pamela Anderson

Liðin vika var með eindæmum hátíðleg. Gleðigangan bar þar hæst og fyllti samfélagsmiðla af ást, glimmeri og fjölbreytileika um helgina. Þá voru sólríkar myndir af erlendum slóðum áberandi á samfélagsmiðlum og sóttu Íslendingar meðal annars tískuvikuna í Kaupmannahöfn.

„Hatrið má ekki sigra“

Hinsegin dagar eru gengnir í garð með tilheyrandi lífi, litagleði og sýnileika. Gleðin nær svo ákveðnu hámarki í Reykjavík á morgun þegar Gleðigangan fer fram og margvíslegur hópur hinsegin fólks sameinast í kröfugöngu sem er á sama tíma mikill fögnuður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×