Lífið

Dóttir Snæ­fríðar og Högna komin með nafn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Stúlkan var skírð við fallega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Stúlkan var skírð við fallega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík. Skjáskot/Snæfríður

Dóttir listaparsins Högna Egilssonar og Snæfríðar Ingvarsdóttur var skírð við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík 14. ágúst síðastliðinn. Stúlkunni var gefið nafnið Ísey Andrá.

Snæfríður greindi frá gleðifréttunum í færslu á Instagram. Stúlkan er fyrsta barn parsins og kom hún í heiminn 25. júní síðastliðinn.

„Dóttir okkar var skírð þann 14.08.’24 við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni. Takk allir sem tóku þátt í að gera þennan dag ógleymanlegan. Við erum svo þakklát fyrir fólkið í kringum okkur,“ skrifar Snæfríður og deilir fallegri mynd af fjölskyldunni.

Parið kynntist á skemmtistað í Reykjavík árið 2014 og byrjuðu að hittast stuttu síðar.

Þau Snæfríður og Högni starfa bæði innan listageirans, hún sem leik- og tónlistarkona og hann sem tónlistarmaður, og eru án efa eitt heitasta par landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.