Durán sökkti Hömrunum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Durán og félagar fagna sigurmarki leiksins.
Durán og félagar fagna sigurmarki leiksins. Bryn Lennon/Getty Images

Aston Villa vann 2-1 útisigur á West Ham United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Sigurmarkið kom þegar rétt rúmar tíu mínútur lifðu leiks.

Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hófst í gærkvöld og hélt áfram í dag. Síðasti leikur dagsins var leikur spútnikliða síðasta árs, Hamranna í West Ham og Aston Villa. 

Það tók gestina aðeins fjórar mínútur að komast yfir. Amadou Onana skallaði þá hornspyrnu samlanda síns Youri Tielemans í netið, sannkölluð draumabyrjun á tímabilinu fyrir Villa á meðan nýr þjálfari West Ham, Julen Lopetegui, gat vart óskað sér verri byrjunar á tíma sínum hjá West Ham.

Leon Bailey var nálægt því að tvöfalda forystu gestanna um miðbik fyrri hálfleiks en skot hans fór í stöngina. Það var svo þegar innan við tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiks sem heimamenn fengu vítaspyrnu. Lucas Paquetá fór á punktinn og jafnaði metin, staðan 1-1 þegar fyrri hálfleik lauk.

Bæði lið fengu fín færi í síðari hálfleik en á endanum var það Durán sem gulltryggði sigur Villa eftir undirbúning Jacob Ramsey á 79. mínútu leiksins. 

Heimamenn sóttu án afláts undir lok leiks en tókst ekki að jafna metin og Villa byrjar tímabilið á 2-1 útisigri í Lundúnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira