Lífið

Harð­fisk-, laxa- og beikonís á Ísdeginum í Hvera­gerði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sunneva og Birta afgreiddu Bestís í allan dag.
Sunneva og Birta afgreiddu Bestís í allan dag. Aðsend

Kjörísdagurinn Stóri var haldinn hátíðlegur í Kjörís í Hveragerði í dag í fimmtánda sinn. Hátíðin er dagskrárliður á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum sem er haldin árlega í Hveragerði. Í tilkynningu frá Kjörís kemur fram að gefnir hafi verið um 200 þúsund skammtar af ís og að áætlað sé að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig á hátíðinni.

Hátíðin hófst klukkan 11 í dag og stóð til 14. Fjallað Löng bílaröð myndaðist á þjóðveginum um hádegisbil í dag vegna hátíðarinnar. Bílaröðin náði niður alla Kambana og langleiðina til Reykjavíkur. Í tilkynningu Kjörís segir að hátíðin hafi þrátt fyrir það gengið vel fyrir sig og allir hafi getað fundið sér bílastæði í bænum.

„Óhætt er að segja að þetta hafi verið alger metþátttaka í ár enda viðburðurinn orðinn vel kynntur og fastur liður hjá mörgum fjölskyldum,“ segir í tilkynningunni.

Áætlað er að um 22 þúsund hafi sótt hátíðina í dag.Aðsend

Valdimar Hafsteinsson framkvæmdastjóri Kjörís setti hátíðina en kynnir var Villi Naglbítur. Boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði á stóra Kjörís sviðinu en meðal þeirra sem komu fram eru GDRN, hljómsveitin Slysh og fleiri. Þá var einnig á svæðinu þrautabraut Hjalta Úrsusar.

Krakkarnir léku sér í þrautabraut Hjalta Úrsusar.Aðsend

Kjörís bauð gestum upp á fjölbreytt úrval af ís. Allt frá Mjúkís ársins 2024 til ýmissa furðutegunda sem voru sérframleidd fyrir þennan dag. Í tilkynningu segir að furðuísarnir hafi vakið mikla athygli en þeir voru Harðfiskís, laxaís, beikonís með karamellusósu og til að toppa daginn var gott að enda á Habanero chilly ís.

Mjög margir þurftu ábót af Biscoff ís-Biscoff kex og Nutella-ís.Aðsend

Stöllurnar úr Teboðinu þær Sunneva Einars og Birta Líf voru á svæðinu og fylgdu eftir nýjustu afurðinni Bestís sem kom á markað í sumar.

Kjörís notar þennan dag til að kynnast bragðlaukum landans og er óhætt að segja að margt hafi komið á óvart. Mjög margir þurftu ábót af Biscoff ís-Biscoff kex og Nutella og því ekki ótrúlegt að hann muni sjást í verslunum í nánustu framtíð.

Hljómsveitin Slysh.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.