Sævargarðar 10
Við Sævargarða 10 er að finna 205 fermetra raðhús sem var byggt árið 1969. Húsið er vel skipulagt á tveimur hæðum. Eignin skiptist í rúmgóðar stofur, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og búlskúr. Úr stofunni er fallegt útsýni út á Kollafjörð, að Esjunni og Akrafjalli. Ásett verð er 154,9 milljónir.


Barðaströnd 13
Við Barðaströnd 13 er að finna 259 fermetra endaraðhús sem var byggt árið 1970. Um er að ræða vel skipulagða eign með fallegu útsýni til sjáavar og fjalla. Heimilið er innréttað á hlýlegan og glæsilegan máta. Samtals eru fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Ásett verð er 222 milljónir.
Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.


Fornaströnd 17
Við Fornuströnd 17 er fallegt 350 fermetbr einbýlishús sem var byggt árið 1972. Eignin var öll tekin í gegn árið 2007, þar sem hún var stækkuð og öll endurskipulögð í samráði við arkitekt.
Heimilið er smekklega innrétta búið fögrum húsmunum og listaverkum. Samtals eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Óskað er eftir tilboði í eignina.
Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.


Vallarbrat 24
Við Vallarbraut 24 er einbýlishús byggt árið 1972. Um er að ræða 223 fermetra eign með tvöföldum bílskúr. Samtals eru fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Stofurýmið er rúmgott og bjart með stórum gluggum. Þaðan er útgengt á skjólsæla hellulagða suður verönd Ásett verð er 179 milljónir.
Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.


Nesbali 11
Við Nesbala 11 er einbýlishús á einni hæð sem var byggt árið 1977. Um er ræða 202 fermetra hús með aukinni lofthæð sem skiptist í eldhús, opið alrými, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Í eldhúsi er smekkleg innrétting í tveimur mismunandi litum, annars vegar svört og hins vegar hvítog há innrétting með innfelldum tækjaskáp. Eldhúsið var endurnýjað og hannað af Berlindi Berndsen innanhúsarkitekt árið 2015. Við húsið eru tveir sólríkir pallar, fallega gróinn garður, heitur pottur og útisturta. Ásett verð er 188,9 milljónir.
Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

