Diaz og Salah tryggðu Liverpool fyrsta heimasigur Slots

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mohamed Salah skoraði annað mark Liveprool.
Mohamed Salah skoraði annað mark Liveprool. Marc Atkins/Getty Images

Liverpool vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Þetta var fyrsti heimaleikur liðsins í deildinni undir stjórn Arne Slot.

Heimamenn í Liverpool voru mun sterkari í leik dagsins og þeir komust í forystu strax á 13. mínútu þegar Luis Diaz kom boltanum í netið eftir undirbúning Diogo Jota.

Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins, en Diaz var aftur á ferðinni á 70. mínútu þegar hann lagði upp annað mark heimamanna fyrir egypska markahrókinn Mohamed Salah og þar við sat.

Niðurstaðan því öruggur 2-0 sigur Liverpool sem er með sex stig af sex mögulegum eftir tvo leiki. Brentford er hins vegar enn með þrjú stig eftir sigur gegn Crystal Palace í fyrstu umferð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira