Lífið

Ólafía Þórunn og Thomas orðin hjón

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ólafía og Thomas eiga saman tvo drengi.
Ólafía og Thomas eiga saman tvo drengi. Skjáskot

Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomasi Bojanowski gengu í hjónaband við fallega athöfn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 17 ágúst síðastliðinn.

Ólafía og Thomas birtu hjartnæmt myndskeið frá stóra deginum umvafin fjölskyldu og vinum.

„Takk til ykkar allra sem áttuð þátt í að gera daginn okkur einstakan. Við erum ótrúlega lánsöm að vera umvafin svona yndislegu fólki. Brúðkaup er eitt af þeim fáu viðburðum í lífinu þar sem fólkið sem þú elskar kemur saman á einum stað. Það var súr­realískt að allir hafi náð að koma saman á Íslandi. Takk Takk Takk,“ skrifa nýgiftu hjónin við myndskeiðið.

Að athöfn lokinni var haldið í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík þar sem ástinni var fagnað langt fram eftir kvöldi.

Ólafía og Thomas eiga saman tvo drengi þá Maron Atla sem er fæddur 2021 og Alexander Noel sem fæddist í febrúar á þessu ári.

Ólafía, sem er einn fremsti kylfingur sem Íslendingar hafa átt, tilkynnti sumarið 2022 að hún væri hætt í atvinnumennsku í golfi og að hún ætlaði sér að takast á við ný ævintýri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×