Lífið

Hönnunaríbúð Ingi­bjargar hans Eyjólfs í Epal til sölu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ingibjörg og Eyjólfur hittust fyrir ellefu árum á blindu stefnumóti í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. 
Ingibjörg og Eyjólfur hittust fyrir ellefu árum á blindu stefnumóti í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. 

Ingibjörg Þóra Gunnarsdóttir snyrtifræðingur og sambýliskona Eyjólfs Pálssonar, eiganda hönnunarverslunarinnar EPAL, hefur sett íbúð sína við Leifsgötu í miðborg Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 69,5 milljónir.

Um er að ræða 72 fermetra íbúð á fyrstu hæð í húsi sem var byggt árið 1972.

Íbúðin, sem skiptist í tvær stofur, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi, er björt og rúmgóð og hefur verið endurnýjuð að einhverju leyti. Á gólfum íbúðarinnar er ljóst viðarparket.

Heimilið er innréttað á smekklega máta þar sem klassísk hönnun og listaverk eru í aðalhlutverki.

Í stofunni má meðal annars sjá fögur hönnunarljós eftir danska ljósahönnuðinn Louis Poulsen sem setja fágaðan svip á rýmið. Við borðstofuborðið eru fjórir CH24-stólar úr ljósri sápuborinni eik, hannaðir af danska hönnuðinum Hans J. Wegner árið 1949. Þess má geta að Wegner hannaði yfir 500 stóla í sinni lífstíð.

Eldhúsið er rúmgott og stúkað af. Innréttingin er hvít í gömlum stíl með ljósri borðplötu. Við hlið hennar eru vegghengdar Montanahillur með góðu skápaplássi sem ná upp í loft. 

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Ástina kviknaði á blindu stefnumóti

Ingibjörg og Eyjólfur hittust fyrst á blindu stefnumóti í Hljómskálagarðinum þann 3. júlí árið 2013 eftir að spámiðill, sem hann hefur hitt á fjögurra mánaða fresti síðastliðin tuttugu ár, spáði fyrir um samband þeirra.  Eyjólfur sagði frá þessum örlagaríka degi í helgarviðtali Atvinnulífsins í nóvember í fyrra.

„Ég var búinn að vera einn í fimm ár þegar mér er sagt frá því að klukkan 15 þann 3.júlí árið 2013 myndi ég setjast á bakk í Hljómskálagarðinum og hitta stutthærða flotta konu. Þetta stóðst auðvitað, því þann 3.júlí fór ég á blint stefnumót og átti að hitta konuna við bekkinn hjá styttunni af Jónasi Hallgrímssyni klukkan þrjú. Ég var kominn nokkuð fyrr, sé tvær konur ganga á móti mér og hugsaði: Nú er það svona hjá henni. Hún hefur tekið vinkonu sína með sér….“

Svo reyndist þó ekki vera því konurnar gengu framhjá Eyjólfi.

Nokkrum mínútum síðar hittir Eyjólfur síðan Ingibjörgu, sem mætti klukkan þrjú og úr varð að eftir nokkur skipti tóku þau saman sem par.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×