Sport

Dag­skráin í dag: Stjarnan mætir Fylki og Svein­dís Jane í eld­línunni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stjarnan tekur á móti Fylki í Bestu deild kvenna í kvöld.
Stjarnan tekur á móti Fylki í Bestu deild kvenna í kvöld.

Einn leikur fer fram í Bestu deild kvenna í kvöld og Bestu mörkin verða á dagskrá að leik loknum. Þá leikur Sveindís Jane Jónsdóttir og samherjar hennar í Wolfsburg sinn fyrsta leik í þýsku deildinni.

Stöð 2 Sport

Klukkan 17:50 verður leikur Stjörnunnar og Fylkis í neðri hluta Bestu deildar kvenna sýndur beint. Stjarnan hefur að litlu að keppa en Fylkir verður að vinna sigur til að koma sér í betri stöðu í fallbaráttunni.

Klukkan 20:00 fara Bestu mörkin síðan í loftið þar sem mörkin úr fyrstu umferð neðri og efri hluta Bestu deildarinnar verða sýnd auk allra helstu atvika.

Vodafone Sport

Klukkan 15:55 verður leikur Wolfsburg og Werder Bremen í beinni útsendingu en líklegt er að Sveindís Jane Jónsdóttir komi við sögu í þessum fyrsta leik tímabilsins hjá Wolfsburg.

Leikur Salford City og MK Dons í Leage Two á England verður sýndur klukkan 18:55 og klukkan 23:00 er komið að leik Boston Red Sox og New York Mets í bandarísku MLB-deildinni í hafnabolta. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×