Lífið

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust stúlku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ingó og Alexandra byrjuðu saman árið 2021.
Ingó og Alexandra byrjuðu saman árið 2021. Skjáskot

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eignuðust stúlku þann 31. ágúst síðastliðinn.

Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

„31.08’24 bættist litla systir loksins í hópinn. Hjartað stækkaði um nokkur númer. Stóri bróðir er mjög spenntur& stolltur,“ segir í færslu parsins.

Fyrir eiga þau Þórarinn Ómar sem verður tveggja ára í október.

Ingó og Alexandra opinberuðu samband sitt í júní 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×