Lífið

Aníta Briem sviptir hulunni af ástinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aníta og Hafþór eiga von á sínu fyrsta barni saman í nóvember.
Aníta og Hafþór eiga von á sínu fyrsta barni saman í nóvember. Skjáskot

Leikkona Aníta Briem birti fyrstu myndirnar af sambýlismanni sínum Hafþóri Waldorff í tilefni af þrítugsafmæli hans 30. ágúst síðasliðinn. Parið byrjaði að slá sér upp síðastliðið haust en hefur haldið sambandinu að mestu utan sviðsljóssins.

Við myndafærsluna skrifaði Aníta fallega kveðju til síns heittelskaða. 

„Maður­inn minn með stóra hjartað. Takk fyr­ir að opna allt upp á gátt, byggja með mér heim, þar sem allt er hvell­pósi­tívt og glitrandi. Hjá þér er jörðin og róin sem og hit­inn og for­vitn­in. Til ham­ingju með stóra dag­inn þinn ást­in mín,” skrif­ar Aníta. 

Aníta og Hafþór eiga saman von á stúlku í nóvember næstkomandi. Fyrir á Aníta eina stúlku með þáverandi eiginmanni sínum Constantine Paraskevopoulus

Aníta og Hafþór hafa undanfarið unnið náið saman í kvikmyndageiranum. Nokkur aldursmunur er á parinu eða um tólf ár. Aníta er fædd árið 1982 og Hafþór 1994.

Nýverið festi parið kaup á sinni fyrstu eign saman, fallega rishæð við Bárugötu í Reykjavík.

Aníta er ein hæfileikaríkasta leikkona okkar Íslendinga. Hún flutti heim til Íslands árið 2020 eftir farsælan feril erlendis og hefur síðan þá verið iðin við kolann hvað varðar íslenska kvikmyndagerðarlist. Má þar nefna kvikmyndina Skjálfta, Villibráð og Svari við Bréfi Helgu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×