Lífið

Baltasar og Sunn­eva eignuðust stúlku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sunneva Ása skellti kossi á sinn mann við þetta risatilefni.
Sunneva Ása skellti kossi á sinn mann við þetta risatilefni. Hulda Margrét

Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskyldan er í skýjunum með litlu viðbótina.

Um er að ræða fyrsta barn Sunnevu en Baltasar á fjögur börn fyrir. Sunneva og Baltasar byrjuðu saman í ársbyrjun 2019.

Baltasar og Sunneva hafa unnið saman að stórum verkefnum og má þar nefna Netflix þáttaröðina Katla, Ófærð 3 og kvikmyndina Snertingu. Baltasar sá um leikstjórn og Sunneva um leikmyndirnar.

Sunneva hefur náð langt í listasenunni og hefur ferðast víða um heiminn og haldið listasýningar. Þá voru nokkur af verkum hennar til sýnis á einni stærstu listamessu í Norðurlöndunum; Market ART Fair.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×