Sport

Næsthæsti maður heims þarf að sofa á gólfinu í París

Sindri Sverrisson skrifar
Morteza Mehrzad er 246 sentímetrar og því mun hærri en flestir liðsfélagar hans.
Morteza Mehrzad er 246 sentímetrar og því mun hærri en flestir liðsfélagar hans. Getty/Jens Büttner

Einn af þeim sem óhjákvæmilega vekja hvað mesta athygli á Ólympíumóti fatlaðra er Morteza Mehrzad enda er hann næsthávaxnasti maður heims, eða 2,46 metrar að hæð. Að vera svo hávaxinn hefur sína kosti og galla.

Mehrzad keppir fyrir Íran í sitjandi blaki og þar gefur hæðin honum vissulega ákveðna kosti. Mehrzad er enda tvöfaldur ólympíumótsmeistari og stefnir á þriðja titilinn í París.

En einn galli við það að vera svo hávaxinn er að rúmin í ólympíuþorpinu í París eru ekki nægilega stór og því þarf Mehrzad hreinlega að sofa á gólfinu.

Fékk sérútbúið rúm í Tókýó

„Í Tókýó [á ÓL 2021] voru þeir með sérútbúið rúm fyrir hann en því miður er það ekki þannig hérna,“ sagði Hadi Rezaeigarkani, aðalþjálfari íranska liðsins, við Olympics.com. „Þess vegna verður hann að sofa á gólfinu.“

„Hann er ekki með sérútbúið rúm en hann er með aðalmarkmiðið efst í huga. Það skiptir hann ekki máli hvort hann þurfi að sofa á gólfinu eða fái ekki nóg að borða. Hann hugsar bara um það að verða meistari,“ sagði Rezaeigarkani.

Íran hefur haft algjöra yfirburði í sitjandi blaki því liðið hefur unnið til gullverðlauna á sjö af níu Ólympíumótum fatlaðra frá því að það tók fyrst þátt í Seúl 1988.

Mehrzad vann fyrst gull árið 2016 í Ríó, og varð þar með hávaxnasti ólympíumótsmeistari sögunnar.

Með æsavöxt og slasaðist í reiðhjólaslysi

Hann greindist með æsavöxt (e. acromegaly), sjaldgæfan sjúkdóm sem stafar af offramleiðslu vaxtarhormóns á fullorðinsárum. Hann lenti í reiðhjólaslysi sem unglingur sem hefti vöxt hægri fótleggsins, sem nú er 15 sentímetrum styttri en sá vinstri og því þarf þessi 36 ára íþróttamaður stundum að nota hjólastól.

Morteza Mehrzad er tvöfaldur ólympíumótsmeistari og var valinn bestur í Tókýó á síðasta móti.Getty/Jens Büttner

Lokaði sig inni en er nú íþróttastjarna

Landsliðsþjálfarinn uppgötvaði Mehrzad þegar hann sá hann í raunveruleikasjónvarpsþætti árið 2011, og gleðst yfir því að hann sé nú orðinn að íþróttastjörnu.

„Ég held að Morteza hafi verið inni í herberginu sínu í ellefu ár, án þess að fara út. Af því að hann er hæstur allra þá vildi hann ekki fara út og kunni ekki við að allir væru að stara á hann. En núna horfa allir á hann sem meistara,“ sagði Rezaeigarkani.

Eftir sigurinn í Ríó vann Mehrzad aftur í Tókýó 2021 og var valinn verðmætasti leikmaðurinn. Þjálfarinn segir hann mikilvægasta leikmann íranska liðsins en vill ekki ganga svo langt að telja hann þann besta í sögunni. Mikilvægustu skilaboðin séu hins vegar þau að allir í heiminum hafi yfir hæfileikum að búa og það þurfi bara að leita eftir þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×