Lífið

Nylon-stjarna selur slotið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Erlingur Örn og Steinunn Camilla hafa sett íbúð sína á sölu.
Erlingur Örn og Steinunn Camilla hafa sett íbúð sína á sölu. SAMSETT

Umboðsmaðurinn og tónlistarkonan Steinunn Camilla, meðeigandi Iceland Sync, hefur sett fallega íbúð sína á sölu á Hlíðarvegi í Kópavogi. Íbúðin er björt og hefur nýverið verið endurnýjuð nánast að öllu leyti af sambýlismanni Steinunnar. 

Steinunn Camilla er í sambúð með verkfræðingnum og byggingastjóranum Erlingi Erni Hafsteinssyni og saman eiga þau tvö börn. Fjölskyldan hyggst halda áfram að búa í Kópavogi en ætla að stækka við sig. 

Íbúðin til sölu er 118 fm og staðsett á Hlíðarvegi 20. Henni er lýst sem vel skipulagðri fjögurra svefnherbergja íbúð með sérinngangi á skjólsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs. 

Svefnherbergið er rúmgott og smart.
Það er gott skjól í garðinum.
Opið eldhús.
Listaverk eftir Ingvar Þór á veggnum.
Stofuborðið og bekkurinn er handgert eftir Ella og Steinunni. Elli tók íbúðina sömuleiðis sjálfur alveg í gegn.
Nýuppgert og stílhreint baðherbergi.
Íbúðin er björt og gluggarnir stórir.
Arinn og smart veggur bak við sjónvarpið.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um íbúðina á fasteignavefnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×